bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 09. Jun 2025 09:08

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 34 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next
Author Message
PostPosted: Tue 22. Feb 2011 09:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Hefur einhver annar tekið eftir því að tollurinn (eða tollmiðlun póstsins) sé orðinn ansi kræfur við álagningu gjalda við innflutning?

Ég er núna búinn að lenda í því tvisvar á c.a. mánuði að reikningurinn sem ég fæ er u.þ.b. tvöfalt hærri en hann á að vera. Svo þegar ég sendi þeim póst með reikningi seljanda og mínum útreikningum þá er minnsta mál að laga þetta í rétta upphæð og mínir útreikningar réttir.

Mórallinn í sögunni er sá að skoða vel reikninginn sem þið fáið frá tollinum, maður borgar víst nóg í þetta bákn svo maður sé ekki ofrukkaður líka!

Það er minnsta mál að reikna þetta sjálfur skv. tollskránni á https://vefafgreidsla.tollur.is/tollalina/tav/ eða jafnvel með reiknivélinni á http://www.tollur.is/upload/files/calc_ ... 822%29.htm

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Feb 2011 09:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Var einmitt að ræða við eina sem sér um að reikna og rukka tolla á vörum sem eru fluttar til landsins gegnum Icelandair Cargo og leystar út hjá þeim. Hún sagði mér að tollurinn fer vel yfir alla útreikninga frá þeim til að passa að allt sé rétt tollað. Ef einhver hlutur er settur í rangan tollflokk með of lág gjöld þá senda þeir rukkun en þeir endugreiða aldrei ef einhver vara er sett í rangan tollflokk með of há gjöld!

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Feb 2011 10:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
Ég var að fá hlut í seinustu viku þar sem þeir ákváðu að nota pund í stað dollara við útreikning álagningar. Um að gera að fylgjast með því líka.

Man líka eftir því að Bentley manuallinn minn fyrir z3 átti að vera tollaður sem varahlutur en ekki bók á sínum tíma.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Feb 2011 10:37 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Er sorglega latur að fara yfir þetta :(
Thumbs up fyrir ábendinguna á reiknivélina og yfirlitið.

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Feb 2011 22:25 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Wed 13. Sep 2006 16:21
Posts: 222
Location: Reykjavík
Rólyndis maðurinn ég hef bara einu sinni á ævinni verið svo reiður að ég hafi gert mér sérstaka ferð, hraunað yfir og fokkað á starfsmenn fyrirtækis. Þetta gerðist einmitt þegar tollurinn lék mig grátt.

Hvað lærði ég af þessari ferð...
1. Aldrei senda einhvern til að sækja pakka fyrir þig frá útlöndum þegar það þarf að borga eitthvað.
2. Muna að taka allar kvittanir og geyma á góðum stað.
3. Maður er á lélegu tímakaupi við að standa í stappi við tollmiðlun.

_________________
E36 BMW 316i M-Tech 1998


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 23. Feb 2011 11:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ótrúlegt að svona reglur standist lög.. að þeir sendi rukkun eftir á ef þeir misreikna í þá áttina, en endurgreiði ekki þeim sem eru látnir borga of mikið..

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 23. Feb 2011 13:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Er ekki hægt að útfæra sína eigin tollskýrslu þegar pantar vöru og haft hana tilbúna þegar varan kemur til landsins?

Getur varla verið svo flókið!

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 23. Feb 2011 14:21 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
SteiniDJ wrote:
Er ekki hægt að útfæra sína eigin tollskýrslu þegar pantar vöru og haft hana tilbúna þegar varan kemur til landsins?

Getur varla verið svo flókið!


jú, þetta er frekar mikið torf. T.d. þarf að setja umbúðir og plast með á innflutningsskýrsluna svo hún sé tekin gild. Jafnvel þó það kosti ekki neitt, þá verður það að vera með á skýrslunni :hmm:

Þegar þú ert búinn að bíða í svona viku og senda nýja skýrslu inn 2svar sinnum, þá hættir þú bara að nenna þessu og færð e-n til að gera þetta fyrir þig :)

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 08:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
saemi wrote:
SteiniDJ wrote:
Er ekki hægt að útfæra sína eigin tollskýrslu þegar pantar vöru og haft hana tilbúna þegar varan kemur til landsins?

Getur varla verið svo flókið!


jú, þetta er frekar mikið torf. T.d. þarf að setja umbúðir og plast með á innflutningsskýrsluna svo hún sé tekin gild. Jafnvel þó það kosti ekki neitt, þá verður það að vera með á skýrslunni :hmm:

Þegar þú ert búinn að bíða í svona viku og senda nýja skýrslu inn 2svar sinnum, þá hættir þú bara að nenna þessu og færð e-n til að gera þetta fyrir þig :)



Ég reyndi þetta líka einu sinni. Eftir tæp 20 ár í skóla þá játaði ég mig sigraðan af tollskýrslu :D

Alveg fáránlegt torf.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 10:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Er þetta ekki eitthvað sem maður verður að prófa? A.m.k. einusinni? Meina, how hard can it be? :lol:

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 23:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
SteiniDJ wrote:
Er þetta ekki eitthvað sem maður verður að prófa? A.m.k. einusinni? Meina, how hard can it be? :lol:


Ekkert svo erfitt, ef maður kann það. :D

Gerði þetta einhvern tíma fyrir sjálfan mig og gekk svosem upp í fyrstu tilraun en mér fannst ekki taka því miðað við gjaldið sem pósturinn tekur fyrir þetta.

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 23:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Posts: 10993
Location: Keflavík, BMW hverfinu
Sammála þessu,,,,ég hef einu sinni skilað inn tollskýrslu sjálfur fyrir vöru sem ég var að kaupa að utan.

Þurfti að skila henni niður í tollstjóra á tryggvagötu, svo fara með samþykkta pappíra upp í tollmiðlun á stórhöfða.
Það eitt og sér er dýrara í bensínkostnaði en að borga bara póstinum tæpar 3 þúsund kr strax.

Amk hef ég ekki nennt að standa í þessu síðan.

_________________
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 25. Feb 2011 00:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Er ekki hægt að faxa þetta bara?

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 25. Feb 2011 09:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
þörf ábending.
Ég hringi stundum í tollstjóraembættið og fæ leiðbeiningar, þeir segja manni að hafa samband við fyrirtæki sem gera tollskýrslur en ég neita og fer ekki úr símanum fyrr en ég fæ nákvæma útlistun á því hvernig á að gera þetta. Þetta er hægt því þeir eru að rukka þessi gjöld og verða að upplýsa mann hvernig maður á að borga þetta.
Í þessu þjóðfélagi þarf alltaf að láta kné fylgja kviði!
Ég vil einnig benda á það að með inngöngu í EU þá falla öll slík gjöld niður og þá þurfa íslensk fyrirtæki að keppa við erlend fyrirtæki og þá geta þeir ekki lengur okrað á okkur. Stundum eru verðin þannig hér á þessu skeri að halda mætti að starfsmenn fyrirtækisins fari með farþegaflugi til að sækja hvern einasta hlut og kaupi hann á verslunarverði erlendis en nýti sér ekki fraktflutninga!

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 25. Feb 2011 09:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Bjarki wrote:
þörf ábending.
Ég hringi stundum í tollstjóraembættið og fæ leiðbeiningar, þeir segja manni að hafa samband við fyrirtæki sem gera tollskýrslur en ég neita og fer ekki úr símanum fyrr en ég fæ nákvæma útlistun á því hvernig á að gera þetta. Þetta er hægt því þeir eru að rukka þessi gjöld og verða að upplýsa mann hvernig maður á að borga þetta.
Í þessu þjóðfélagi þarf alltaf að láta kné fylgja kviði!
Ég vil einnig benda á það að með inngöngu í EU þá falla öll slík gjöld niður og þá þurfa íslensk fyrirtæki að keppa við erlend fyrirtæki og þá geta þeir ekki lengur okrað á okkur. Stundum eru verðin þannig hér á þessu skeri að halda mætti að starfsmenn fyrirtækisins fari með farþegaflugi til að sækja hvern einasta hlut og kaupi hann á verslunarverði erlendis en nýti sér ekki fraktflutninga!



Þessvegna vill ég EU :thup:

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 34 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 13 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group