CO2 tölurnar sem notaðar eru í þessum tilgangi eru ekki púnkt gildi sem hægt er að mæla á skoðunarstöð heldur er framleiðendum skilt að mæla þetta út frá tilteknum aksturshring sem skilgreindur er af Evrópusambandinu. Euro 1 reglugerðin sem byggir á þessu kom fyrst fram 1993, þannig að það er mjög ólíklegt að þessar tölur séu til fyrir bíla eldri en það (og jafnvel nýrri)
Bretar tóku upp þessa reglu fyrir bifreiðagjöld fyrir nokkrum árum og þar er aðeins gert ráð fyrir að bílar skráðir eftir 1. Mars 2001 notist við C02 g/km við útreikning bifreiðagjalda. Bílar framleiddir fyrir þann tíma notast við rúmtak vélar.


