Sælir,
Er farinn að halda að MAF skynjararnir mínir eru ekki eins góðir og þeir eiga að vera og langar að mæla þá. Hef heyrt um aðferð sem notar mælaborðið til þess að mæla virkni þeirra (en það er dautt hjá mér, þannig no go þar) eða OBD-II scan tool. Á einhver svoleiðis sem getur hjálpað mér með þetta við tækifæri?
Og, ef þeir reynast vera lélegir þá langar mig að prófa að þrífa þá. Tutorial sem ég fann á M5Board mælir með Simple Green All-Purpose Cleaner, en ég veit ekki um neitt sambærilegt hér heima. Hafið þið hugmynd um hvað hægt væri að nota?
Kv, Steini


