Ég viðurkenni að ég var að læra hvað "Rest" takkinn, sem er staðsettur í miðstöðinni á bílnum, gerir. Ég veit ekki alveg í hvaða bílum þetta er en allavega í e39 og eflaust mörgum fleirum.
Ég var búinn að keyra á e39 í nokkur ár áður en ég lærði hvað þessi takki gerir en nú þegar ég veit þá get ég ekki sagt annað en að þetta sé snilldartakki!
Tökum dæmi, það er hávetur og skítkalt úti. Þú þarft að skjótast aðeins úr bílnum í nokkrar mínútur en vilt ekki hafa hann í gangi, en samt viltu ekki að hann verði aftur kaldur. Þar kemur "Rest" takkinn inn.
Gefið að vélin sé orðin heit, þá geturðu drepið á bílnum, en áður en þú svissar alveg af þá ýtirðu á "rest" takkann. Síðan tekurðu lyklana, læsir bílnum og á meðan þú ert frá þá heldur bíllinn hitanum inni stöðugum.
Hversu margir vissu þetta ekki ? Kannski er ég algjör auli að hafa ekki vitað þetta en þessi fídus er sniðugur!



