Vesen með rúðuþurkur í E39

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Vesen með rúðuþurkur í E39

Postby Manace » Wed 19. Jan 2011 23:37

Þannig er mál með vexti að ég setti þurrkurnar í gang í fyrradag og þær
fóru upp en svo ekkert aftur niður. Allt dautt. Þurrkan sem er bílstjóra
megin er alveg laus og ekkert mál að hreyfa en þurrkan farþegamegin
hreyfist bara hálfa leið upp og ekki aftur niður, jafnvel þó ég reyni að
hjálpa henni. Það heyrist ekkert í mótornum þegar ég hef kveikt á þeim
en athugið að þurrkan farrþegamegin fer niður ef ég er búinn að ýta
henni upp, en stoppar á miðri leið og fer ekki neðar. Þær semsagt hreyfast
ekki neitt hvorki upp né niður, en ef ég ýti þeim upp og set í gang þá fer
sú sem er farþegamegin hálfa leið niður og búið.

Hundleiðinlegt mál þar sem ég er búinn að vera mjög ánægður með bílinn
og hann hefur reynst mér algjörlega vandamálalaus í 11 mánuði, en
eitthverntíman kemur að eitthverju ekki satt!

Bíllinn er 2000 árgerð ef það er eitthver munur á þurrkum á árgerðum.

Þar sem ég er engu nær hvað vandamálið er ákvað ég að leita til ykkar.
Endilega skjótið á mig hvað þið haldið eða hvort þið hafið lent í eitthverju
svipuðu.

Einar.
BMW 523 E39
Manace
Kassabílstjóri
 
Posts: 157
Joined: Mon 12. Apr 2010 23:15

Re: Vesen með rúðuþurkur í E39

Postby oddur11 » Wed 19. Jan 2011 23:42

umm... bilaður mótor, eða sambandsleysi?

prufa að skipta um mótor, fara yfir víra
Mazda 626 '98 R.I.P
BMW e32 730i '93 seldur
BMW e46 318 '99 seldur
BMW e30 335 '89 "Got drift?" seldur
Benz e190 '92 sportliner seldur
BMW e34 525tds seldur
BMW e39 523ia mattsvartur daily seldur
BMW e36 325is
BMW e36 318is seldur
BMW e34 525
User avatar
oddur11
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1351
Joined: Mon 25. Feb 2008 16:45
Location: 109 Breidholt

Re: Vesen með rúðuþurkur í E39

Postby bimmer » Thu 20. Jan 2011 00:56

Rúðuþurrkurnar fóru að hegða sér furðulega hjá mér, virkuðu stundum stundum ekki.

Var relayið. Veit ekki hvort þetta á við í þessu tilviki.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Vesen með rúðuþurkur í E39

Postby petur-26- » Thu 20. Jan 2011 00:57

hefur færst til á rílunum, eða plastþéttingin fyrir aðra þurkuna farin pottþétt ;), bara taka i sundur og tékka
petur-26-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 537
Joined: Mon 25. Feb 2008 23:00


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests