Veit nú ekkert hvort að þetta á heima í þessum þræði en þetta verður þá bara fært eitthvað annað.
Er að velta fyrir mér sumardekkjunum,, ætla mér að rönna að 16" í sumar og var að spá hvort maður á bara að fara eftir því sem getið er í skráningarskirteininu varðandi breidd og prófíl, En þar sem ég mun lækka bílinn um 6cm að framan og 2cm að aftan þá er kannski betra að vera með eitthvað annað en 195/65.
Er að leitast eftir meðmælum varðandi þetta.
kv Gulli.
