gunnar wrote:
Þetta er alveg svakalega fallegt
Þessi á eftir að verða gríðarlega fallegur í þessum lit með S50,
Ert að fara hiklaust í rétta átt með þennan bíl, bjóst einhvern veginn aldrei við því að segja það

Þakka það Gunnar
ég hugsaði mig vel um í sumar og áttaði mig þá á því að fyrst maður fékk draumabílinn uppí hendurnar
þá er það bara asna skapur að setja einhvern óáræðanlegann turbo mótor í húddið á bílnum og standa allt flatt og skemma í sífellu eitthvað og fara illa með bílinn í einhverri vitleysu
(er búinn að stunda það nóg á gamla touringunum mínum á sínum tíma, sá bíll fékk sko að þola enga smá hluti

)
get frekar keypt mér 525i eða eitthvað álíka ómerkilegt einsog ég átti um tíma í fyrra sumar til að fara illa með í svona leikaraskap ef manni langar til þess
mér fannst það bara borga sig bara að fara alla leið með þennan M3 og gera hann góðann með með skemmtilegum og áræðanlegann mótor sem maður skammast sín ekki fyrir að setja ofaní svona bíl OG taka bílinn gersamlega í GEGN og fara vel með hann,
(þetta er ekki bara einhver e30 heldur e30 m3, þessir bílar eiga sér gríðalega merkilega sögu og eru merkilegir bílar að mínu mati.
Skelin var gríðalega vel tekin í gegn að mínu mati, Tóti hérna á spjallinu, frændur mínir sem reka Renniverkstæði Ægis ehf og Árni Sezar hafa unnið mjög mikið og vel að þessum bíl með mér og ég er BARA þakklátur fyrir það!
er ekkert að flýta mér að klára bílinn er að reyna gera þetta eins vel og ég mögulega get
það væri bara gaman að eiga þennan bíl inní skúr þegar maður er orðinn tildæmis fertugur eða eldri og það er stefnan
Kv, Már