Áhuginn kominn aftur núna að klappa þessum blessaða bíl mínum, Hann verður 25 ára núna 11 Maí og spurnig að reyna að koma þessu saman fyrir þann tima.
Það sem ég þarf að gera er.
M50B25 svapp með M20 Gírkassa kúpingu og svinghjóli.
Túrbókerfi með annað hvort Garret gt30 eða Borg Warner túrbínu, ég á Garret túrbínuna en hún er til sölu ef einhverjum vantar túrbínu sem er góð upp að um 550-600 hö
Þarf að laga bremsur, er búinn að kaupa mér 4 stimpla Brembo áldælur eins og Einarsss er með en ég er í felguvandamáli þar sem felgurnar mínar eru með of lágu offsetti. Þannig að ég verð að sætta mig við eithvað orginal til að byrja með. Gaman að taka það fram að það eru enn sömu bremsudiskar í bílnum og þegar ég keypti hann árið 1997 og ég er búinn að keyra hann 100þ km.
Svo er það fóðringa mál en ég er búinn að kaupa Powerflex pólý í bílinn og verður allt tekið í gegn í þeim málum.
Að lokum ef er það 3.15 drif sem fer í hann og þarf ég að færa læsingu yfir í það. Á Þetta til.
Núna þarf ég að taka til í skúnum og skola 4 og hálfs ára rykið af bínum koma honum í gang.
