jæja fór um daginn 23.des og ræsti e36-inum mínum og ætlaði út að keyra í fyrsta skipti í dágóðan tíma, bíllinn er búinn að standa á samastað fyrir utan húsið mitt í nokkrar vikur....
allavegana þegar bíllinn var búinn að ganga smá ætlaði ég að fara að hreyfa hann... og steig á kúplings pedalann og hann datt bara í gólfið og fer ekki upp aftur nema að ég toga í hann sjálfur... það er ekki hægt að pumpa pedalann hann er bara annaðhvort neðst niðri eða efst
ég ýtti bílnum til í stæðinu og það eru engir sjáanlegir lekar frá kúplingsþrælnum á jörðinni , ég á eftir að tjakka bílinn upp og kíkja á þrælinn.
það eru engir lekar sjáanlegir hjá masternum heldur.
eru einhverjir barkar við pedalann sem geta slitnað ?
hvað getur þetta verið?
Kv. Árni
