Bílinn með kjaft e39

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Bílinn með kjaft e39

Postby Haffi123 » Thu 23. Dec 2010 21:07

Sælir

Keypti mér þennan gullfallega 540i 2002 módel fyrir nokkru og ég gæti ekki verið meira ánægður með hann, en honum líkar ekki við mig og er alltaf að öskra á mig eða semsagt talvan gefur alltaf frá sér óþoldandi hljóð í laangan tíma þegar ég sit í bak og stundum þegar ég er nýlagður á stað.

Ég býst við því að þetta tengist eithvað bakkskynrum en það er oftast ekkert nálægt bílnum ég næ síðan að þagga niður í honum með því að ýta á PDC takka á tölvuni en ég þarf að gera það í hvert einasta skifti sem ég fer eithvað á bílnum.

Er eithvað bilað hjá mér og hvernig get ég þaggað niðri þessu? Síðan er annað sem mig langaði að spyrja ykkur meistarna að en það er sambandi við Max takkan á miðstöðinni, virkaði fínt þegar ég fékk bílinn og mér leið eins og ég væri að kveikja á þotuhreyflum þegar ég ýtti á hann en núna virkar hann ekki. Er einhver séns á því að ég hafi einhvern meigin læst eða gert hann óvirkan? fynnst svo ólíklegt að hann hafi bilað svona stuttu eftir að ég keypti bílinn.
BMW 540i E39 '02
BMW 316i E36 '96
User avatar
Haffi123
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Mon 21. Jun 2010 22:53
Location: Norðan heiða

Re: Bílinn með kjaft e39

Postby oddur11 » Thu 23. Dec 2010 22:32

gæti ekki bara verið að það sé skítur á bakkskynjaranum?
Mazda 626 '98 R.I.P
BMW e32 730i '93 seldur
BMW e46 318 '99 seldur
BMW e30 335 '89 "Got drift?" seldur
Benz e190 '92 sportliner seldur
BMW e34 525tds seldur
BMW e39 523ia mattsvartur daily seldur
BMW e36 325is
BMW e36 318is seldur
BMW e34 525
User avatar
oddur11
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1351
Joined: Mon 25. Feb 2008 16:45
Location: 109 Breidholt

Re: Bílinn með kjaft e39

Postby crashed » Thu 23. Dec 2010 22:40

E38 létt svona hjá mér og þegar ég skoðaði skynjarana þá var smá drulla í einum og annar var aðeins of ynnarlega í stuðaranum sem trublaði hann, en með max takkan að hann hefur aldrei virkað hjá mér og ég veit ekki einu sinni hvað hann á að gera, svona svipað eins og framrúðu hitin hefur ekki virkað eða regnskynjarinn hehe tölvudrasl
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628
crashed
Getawaybílstjóri
 
Posts: 939
Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Location: njarðvík

Re: Bílinn með kjaft e39

Postby Skúli » Fri 24. Dec 2010 01:12

Þú veist að það var klesst hægra megin að aftan á þennan bíl, er ekki bara skynjarinn hægra megin á aftustuðaranum eitthvað laskaður? Ef ég man rétt þá náði tjónið yfir einn skynjara.
Bmw e39 ///M5
Kawasaki kxf 450 2012 & Honda CBR 600rr 2007
Seldir: Bmw ///M5 '01, Bmw e60 545 '04 x2, Benz CLK 500 '04, Benz CL600 V12 '01, Audi A8L 4.2 '05 ofl.
Skúli
Kassabílstjóri
 
Posts: 226
Joined: Mon 13. Jul 2009 17:22

Re: Bílinn með kjaft e39

Postby Haffi123 » Fri 24. Dec 2010 08:13

Hmmm ertu viss um að það hafi verið þessi bíll? Sé enginn ummerki að það hafi verið klesst á hann og ef það hefur verið gert við það hefði þá ekki verið lagað þann skynjara líka. En hvernig veistu um hvaða bíl ég er að tala um?
BMW 540i E39 '02
BMW 316i E36 '96
User avatar
Haffi123
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Mon 21. Jun 2010 22:53
Location: Norðan heiða

Re: Bílinn með kjaft e39

Postby sosupabbi » Fri 24. Dec 2010 18:38

getur líka verið klaki á skynjaranum ef hann lætur bara svona í frosti
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: Bílinn með kjaft e39

Postby Skúli » Sun 26. Dec 2010 02:04

Haffi123 wrote:Hmmm ertu viss um að það hafi verið þessi bíll? Sé enginn ummerki að það hafi verið klesst á hann og ef það hefur verið gert við það hefði þá ekki verið lagað þann skynjara líka. En hvernig veistu um hvaða bíl ég er að tala um?


Er þetta ekki 2002 540 bsk á 18" alpinu felgunum? Ef ekki biðst ég forláts :)
Bmw e39 ///M5
Kawasaki kxf 450 2012 & Honda CBR 600rr 2007
Seldir: Bmw ///M5 '01, Bmw e60 545 '04 x2, Benz CLK 500 '04, Benz CL600 V12 '01, Audi A8L 4.2 '05 ofl.
Skúli
Kassabílstjóri
 
Posts: 226
Joined: Mon 13. Jul 2009 17:22

Re: Bílinn með kjaft e39

Postby Haffi123 » Sun 26. Dec 2010 15:07

Nei minns er sjálfskiftur keypti hann í sumar. Ótrúlegt en satt þá var bakkað á bílinn áðan, læt kíkja á þetta þegar ég fer með hann á verkstæði. Takk samt fyrir uppástungurnar.
BMW 540i E39 '02
BMW 316i E36 '96
User avatar
Haffi123
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Mon 21. Jun 2010 22:53
Location: Norðan heiða


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests