Hef ekki góða reynslu af því að taka inn varahluti fyrir aðra, en get þó hjálpað þér með ferlið ef þú færð engan til að gera þetta f. þig:
1.
Ef þú átt kredit kort, tengdu það við PayPal aðgang.
Þetta ferli er mjög einfalt. Þú slærð inn notendaupplýsingar, velur gott og sterkt lykilorð (%!"oK#95sunDur væri t.d. awesome lykilorð, en 1234abc skelfilegt). Þeir biðja þig um að tengja kredit kort við aðganginn þinn. Þegar þú ert búinn að gera það, þá rukka þeir þig um $1 - 5 USD.
2.
Virkjaðu kortið.
Nú þarftu að bíða í nokkra daga. Fylgstu vel með yfirlitinu í heimabankanum, en fljótlega ætti að birtast gjaldfærslan frá PayPal. Með henni fylgir 4 stafa talnaruna (9518PayPal t.d.) og notarðu tölurnar til að virkja aðganginn þinn.
3.
Finndu vefverslun sem sendir til Íslands.
Ég mæli með PelicanParts þegar það kemur að varahlutum. Góð verð, gott úrval og fljótir að senda. eBay virkar fínt ef þú treystir þér í það (mikilvægt: skoðaðu feedback sölumanns!) og ef seljandi sendir til Íslands. Mæli með því að þú verslir bara við síður sem bjóða upp á PayPal eða Google Checkout.
4.
PantaðuPassaðu þig á því að síðan sem þú ert að nota er 100% örugg. Aðeins
https://www.paypal.com mun biðja þig um PayPal lykilorð! Þú þarft ekki að hafa miklar áhyggjur þegar þú notar vel þekkta og góða verslun eins og PelicanParts (þeir ættu að fara borga mér commission fyrir öll lof sem þeir fá frá mér

)
Mundu að geyma alla reikninga sem þú færð frá PayPal og sölumanni.
5.
TollamálÞegar varan kemur til landsins þá sendir Pósturinn/Tollurinn þér bréf. Þarna eru þeir að biðja þig um leyfi til að opna vöruna til að finna reikning, ef hann er ekki til staðar utan á kassanum. Þú getur líka sent þeim reikninginn í tölvupósti eða einfaldlega farið með öll skjöl niður í Stórhöfða og gengið frá málunum þar, greitt fyrir tolla og tekið við vörunni.
Þetta er ekki flóknara en þetta! Kannski ekki það sem þú ert að vonast eftir, en ég vona að þetta hjálpi þér í framtíðinni ef þú ferð að versla sjálfur á netinu!