Já, það kom mér ekkert smá á óvart hvað bíllinn var vel með farin.
Hann er '93 módel og var keyrður 59000 km þegar ég keypti hann í október. Síðan hefur maður ekkert verið að bruna um landið þannig að hann er rétt komin upp fyrir 60 þúsundin.
Ég var fyrst alveg viss um að það væri nú eitthvað búið að skrúfa hann niður en síðan lét ég skoða hann og sannfærðist. Þetta var bara draumaeintak sem maður lenti á
Fyrrum eigandi tók bílinn alltaf af númerum á veturna þannig að hann er að fá að kynnast saltinu í fyrsta skipti núna.
Hann er með 1.8 lítra vél sem skilar 140 hestöflum sem er smá skref upp á við frá 1300 vélinni í Suzuki bifreiðinni
Ég er líka að velta fyrir mér hvernig bíllinn myndi taka sig út með smá kitti og lituðum rúðum. Ég veit ekki alveg hvort að konan eigi eftir að samþykkja eitthvað dekur við bílinn.
kv,
Rafn Árnason