bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 09. Jun 2025 07:13

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 66 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5  Next
Author Message
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 10:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
ég er kanski svona einfaldur, en það hljómar sem góð hugmynd að ríkið muni hreinlega GEFA rafmagnið sem er notað á rafmagnsbíla, bara til þess að minnka gjaldreyrisnotkun í eldsneyti sem og útblástur.

Sé það alveg fyrir mér sem túrista attraction að Ísland sé fyrsta rafbílalandið í þeim skilningi að það verði frítt að reka rafbíla.

Það væri gaman að sjá útlistun á þessu peningalega. Til að bæta Olíufélögunum þetta upp væri hægt að gera einkaleifissamning við þá um dreifingu á rafmagninu á bensínstöðvunum. Olíufélögin eru alltaf að tala um að álagning á bensíni sé hvort eða er svo lítil að allur hagnaðurinn komi úr nammisölu og núna bóksölu.

Vandamálið við rafmagn er kanski hvað það tekur langan tíma að tanka upp.....

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 10:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
bimmer wrote:
Benni...... þú ert þó ekkert litaður af því að vinna hjá Skeljungi er það!??!?!?!? :lol:

Rafmagnið er framtíðin í bílabransanum á Íslandi, engin spurning nema um útfærslu.



Gæti verið :oops:

BRENT er annars kominn yfir $90 á fatið, ætli við sjáum ekki frekari hækkun á næstunni. (tek það fram að ég sé ekki um verðútreikningana).

Einhverjum sem langar í vinaafslátt hjá orkunni og shell ?

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 10:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
fart wrote:
ég er kanski svona einfaldur, en það hljómar sem góð hugmynd að ríkið muni hreinlega GEFA rafmagnið sem er notað á rafmagnsbíla, bara til þess að minnka gjaldreyrisnotkun í eldsneyti sem og útblástur.

Sé það alveg fyrir mér sem túrista attraction að Ísland sé fyrsta rafbílalandið í þeim skilningi að það verði frítt að reka rafbíla.

Það væri gaman að sjá útlistun á þessu peningalega. Til að bæta Olíufélögunum þetta upp væri hægt að gera einkaleifissamning við þá um dreifingu á rafmagninu á bensínstöðvunum. Olíufélögin eru alltaf að tala um að álagning á bensíni sé hvort eða er svo lítil að allur hagnaðurinn komi úr nammisölu og núna bóksölu.

Vandamálið við rafmagn er kanski hvað það tekur langan tíma að tanka upp.....


Þetta er allt of stór tekjuliður fyrir ríkið og honum verður aldrei sleppt.

Hvers vegna ætti annars að bæta olíufélögum eitthvað upp, ný tækni úreldir þá gömlu.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 10:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Zed III wrote:
Hvers vegna ætti annars að bæta olíufélögum eitthvað upp, ný tækni úreldir þá gömlu.


+1

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 10:33 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
Ef einhver á eftir að finna leið til að láta "bæta" sér eitthvað upp, þá eru það olíufyrirtækin


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 10:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Olíufélögin eru gríðarlega stór atvinnurekandi, ég sé ekki alveg fyrir mér réttlætið í því að ríkið fari að gefa orku án þess að bæta þeim upp þá fjárfestingu sem þeir hafa farið í, enda alls ekkert ósanngjarnt við það.
Þó svo að ríkið myndi fara að gefa rafmagn myndi samt þurfa að selja Diesel og Bensín, hnetur eins og við viljum okkar internal combustion, og svo verða seint rafmagnstrukkar held ég.

Álögur á Bensín eru háar og verulega tekjuskapandi fyrir ríkið, en peningurinn sem ég og þið eyðum í bensín myndi fara í aðra neyslu, sem myndi skapa tekjur annarstaðar fyrir ríkið. það er ekki þannig að þú cancelir einn skatt og tapir alveg skatttekjunum. Meiri kaupmáttur einstaklinga er jákvæður fyrir samfélagið, og þýðir beint innflæði inn í aðra skattstofna.

Nærtækasta dæmið í þessu er rekstrarkostnaður á húsnæði á Íslandi, sem er hreint út sagt djók miðað við það sem gengur og gerist annarstaðr í heiminum. Ég t.d. er að borga € 350 á mánuði (Gas og rafmang) + € 70 í kalt vant til að halda húsinu hjá mér gangandi, algjör killer get ég sagt ykkur. Ódýrt rafmagn og heitt vant (já ódýrt þó svo að það hafi hækkað) þýðir að fólk getur notað peningana sína í annað.

Ef einhver af ykkur er í verkfræði/hagfræði/viðskiptafræði eða sambærilegu og vatar lokaverkefni þá væri að mínu mati VERULEGA spennandi að reikna þetta í tætlur.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 10:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
já, höfum meiri pening til að kaupa í matinn ... því verslunnarferð í bónus fyrir venjulega máltíð fyrir 4(2 fullorðna + 2 krakka) kostar ekki undir 3000kr .. og ekkert fancy í matinn


kv.

Einn bitur :lol:

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 11:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Alveg sammála fart hérna, algjör óþarfi að fara að hugsa eins og vinstri grænn varðandi tapaðar skatttekjur, það er engin hætta á öðru en að þær skili sér í neyslu sem fer í ríkiskassann hvort eð er.

Olíufélögin hefðu svo ennþá skipaflotan og flugfélögin til að maka krókinn af, það er nú ekki eins og það sé ekki stærsti tekjuliður þeirra.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 11:04 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Einarsss wrote:
já, höfum meiri pening til að kaupa í matinn ... því verslunnarferð í bónus fyrir venjulega máltíð fyrir 4(2 fullorðna + 2 krakka) kostar ekki undir 3000kr .. og ekkert fancy í matinn


kv.

Einn bitur :lol:


Dont get me started með matarkostnað Einar, helgarinnkaupin hér fyrir fjölskylduna geta verið uþb € 200! og maður fær næstum ekkert! Hefur hækkað sjúklega síðustu 5 ár.

En skemmtilegt og einfalt dæmi til að reikna væri fjöldi bíla á Íslandi, meðalakstur á bíl, raforkunotkun fyrir þann akstur og svo verð á rafmagni til Álvera.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 11:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
Svezel wrote:
Alveg sammála fart hérna, algjör óþarfi að fara að hugsa eins og vinstri grænn varðandi tapaðar skatttekjur, það er engin hætta á öðru en að þær skili sér í neyslu sem fer í ríkiskassann hvort eð er.



ég er aðalega að setja mig í spor stjórnmálamanna, ég er ekki sammála þessari skattheimtu.

Skattheimta og tollar drepa samkeppni.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 11:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Fyrst rafmagn

Svo vetni með rafgreiningu, þar sem að bíl vélar eru LANGT frá því að vera hannaðar til tops.

Svo beint vatn (H2 O , gefur 2 ventis einingar á móti einni súrefnis, þannig að straight vatn brotið upp gæfi 2kg vetni og 1 kg súrefni , eða AFR 2:1 , blanda þessu með meira lofti til að finna stoich bruna fyrir vetni) , eins og er er engin skikkanleg leið til að brjóta upp vatn nógu hratt , rafgreining kostar hreinlega of mikla orku svo það sé hægt að gera on the fly, það þyrfti að vera efna samblanda sem myndi valda því(sem kostar þá ekki beina orku framleiðslu af hendi notandans til að framkvæma skilnaðinn). Á endanum seturru vatn á tankinn og það er brotið upp rétt áður enn það fer í vélina, Hérna er ekki verið að búa til eilífðar vél því það þarf eitthvað auka til að framkvæma skilnaðinn (eins og er þá er ákveðin ál og magnesíum blanda sem ef vatn er látið renna yfir skilur í sundur vetnið og súrefnið, þannig að það eru alskyns möguleikar í boði)

Þetta er final lausnin. Gæti vel verið að eitthvað efni sem finnst ekki á jörðinni gæti verið þurfi í þetta, þannig að hvenær þetta verður að raunveruleika er annað mál. Vetnis vélar eru mjög viðkvæmar því vetni brennur alveg mjög hratt og því er detonation mjög mikið vandamál

Menn líta alltaf á nýtni á því að breyta eldsneyti í hreyfingu, eins og er þá er bensín í kringum 30-35% eftir atvikum, það er alveg ÖMURLEG nýtni ef maður lítur á rafmagns mótora, ef vatn breyting myndi skila sér í 1-5% hreyfi orku eftir allt tap þá væri það meira enn nóg til að byrja með.Það myndi enginn segja nei við rafall í skúrinn sem gengi á vatni (og einhverju auka).

Ef bensín bílar gætu komist í 60% þá myndi það annað hvort dobla powerið eða helminga eyðsluna fyrir sama afl.
Alveg frá því að við byrjuðum að nota bensín þá höfum við verið að eyða því of hratt miðað við orkuna sem við fáum í staðinn. Það er HELLINGUR af orku í líter af bensíni, enn eins og við notum það erum við bara að fá 0.35L virði,
Rannsóknir benda til þess að CNG (Compressed Natural Gas) og Bensín notað samann breyti varma nýtni vélarinna töluvert , alveg vel yfir 45%. Þannig að það er hellingur eftir að þróa og hanna í bílvélum, Eftir 10-15ár verða ekki díesel, bensín, cng eða lpg vélar heldur bara vél sem gengur á hverju sem er án þess að þurfa tjúna hana fyrir eitt né neitt því hún getur stillt sig sjálf og fattað á 4-5 cycle hvaða eldsneyti er verið að nota eða samblanda af mörgum eldnseytum. Og þá getur fólk tekið hvað sem er á bílinn

Bara það eitt að skjóta bensíni inn tvisvar per cycle sýnir bætingu á varma nýtni.

Það er í raun hægt að segja að þróun bílvéla er fyrst núna að fara virkilega af stað.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 12:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
:lol: another thread killed by GST, vonlaust að senda inn vitrænt innlegg eftir þetta :lol: :lol: :lol:

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 12:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
nema efnafræðitengt,

3kg af H2O gefa ekki 1kg af O og 2 af H

nema ég sé í ruglinu :?

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 12:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Zed III wrote:
nema efnafræðitengt,

3kg af H2O gefa ekki 1kg af O og 2 af H

nema ég sé í ruglinu :?


Rétt hjá þér, eðlisþyngd súrefnis er mun hærri en eðlisþyngd vetnis

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Dec 2010 13:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Svezel wrote:
Zed III wrote:
nema efnafræðitengt,

3kg af H2O gefa ekki 1kg af O og 2 af H

nema ég sé í ruglinu :?


Rétt hjá þér, eðlisþyngd súrefnis er mun hærri en eðlisþyngd vetnis

er þetta ekki H^2O

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 66 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 34 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group