Gírkassinn kominn í

hrikalega erfitt að koma honum fyrir á réttum stað. Ég var með hjólatjakk undir en kassinn heldur illa jafnvægi á honum. Auk þess vildi hann bara ekki smella upp á skaftið. Alveg massa erfitt líkamlega að berjast í þessu einn, en það hafðist. held að ég hafi aldrei veið með jafn marga marbletti á handleggjunum.
Er samt aðeins stopp núna, þ.e. næ ekki að klára þar sem mig vantar eitt pínku lítið bracket. Kúplingsþrællinn er á allt öðrum stað á Getrag kassanum (neðarlega framaná) vs á Midland kassanum (ofaná). Það þarf því bracket til að halda slöngunum á sínum stað.
Ég ætti samt að ná að ganga frá kasasnum (hengdi hann bara á í gær)
Setja startarann á sinn stað
Tengja skiptibarakana
Hokka upp bakkskynjarann (því miður er öðruvísi tengi á Getraginum vs Midland)
Setja öxlana í
Setja olíu á
Festa gírkassa/mótorpúðann
Hengja upp Subframe og fjöðrun
Festa bremsudælurnar
Tengja kúplinguna og lofttæma
Henda vantskassanum
Henda stuðaranum á
s.s. eitthvað að gera þangað til að braketið fyrir kúplingsslönguna mætir.
BTW.. þetta ofur mega lím er hreint út sagt ofur mega lím. Þetta er eins og steypa. Ég tók vel á þessu og það haggaðist ekki. Til að vera viss seti ég smá stál styrkingu á þetta.
