Bjarkih wrote:
SteiniDJ wrote:
Bjarkih wrote:
SteiniDJ wrote:
Alveg jafn mikil Alpina þrátt fyrir það. Þessir bílar (stock) voru bara mikið hrárri í gamla daga og í mínum huga er það ekki alltaf eftirsóknarvert á þessari öld.

Enda eru nýjir BMW imo ekkert spennandi.
Ég finn til með þér, kannski hefurðu bara ekki komið í almennilegt eintak? Ertu kannski ekki þá svolítið fastur í "gamalt er alltaf betra" hugafarinu sem "hrjáir" svo marga?
Hvort sem að bíllinn sé frá 2006 eða 1986, þá sé ég ekki hvernig þetta getur verið svo mikið öðruvísi inn við beinið. Bimmar í dag eru mikið meira tölvuvæddir og vel útbúnir, en flestir úr eldri flotanum eru það ekki (m.v. vel útbúna bíla í dag). Hönnunarlega séð, þá finnst mér þeir halda áfram að slá í gegn og heiðra hönnuðir þeirra gamla BMW formið án þess að það verði úrelt.
Smekkur manna er misjafn, mér finnst það einfaldlega ekki passa að þristur í dag sé jafnstór og fimma fyrir nokkrum árum. Svo hef ég gaman af BMW út af vissum aksturseiginleikum. Ég vil t.d. hafa sem mesta stjórn á öllu, meira að segja sjálfskiptingar fara í pirrurnar á mér, kannski er ég klikkaður en þetta er mín skoðun allavega.
fimma fyrir nokkrum árum? hvaða fimma var það.. E12? því að E90 fylgir algjörlega stærðaformúlu þristana, og er jafnstór E46 og mjög svipaður E36, hann er meirasegja jafn þröngur að innan og þristar hafa almennt verið, aðeins breiðari reyndar
þú heldur alveg eins í stýrið á nýjum bmw sem gömlum, og getur fengið hann bsk
finnst alltaf fyndið þetta heilkenni að vera á móti nýjum bimmum af því að maður er hrifinn af þeim gömlu, ástæðurnar hafa sjaldnast eitthvað að gera með bílana sjálfa,