Jæja, hefur eitthver lent í þessu?
Allt í einu, þegar ég startaði bílnum, gekk hann á svona 450-500 rpm og fór bara ekkert ofar þó svo maður botnaði drusluna.. við erum að tala um að skjaldbaka myndi taka framúr mér því bíllinn rétt lullaðist áfram.
Eftir þetta er ég búinn að skipta um cps og einn maf sensor, og búinn að prufa að taka hinn maf úr sambandi, en lagast lítið við þetta, einnig er ég búinn að skipta um báða fremri súrefnisskynjarana (reyndar 1000 km áður en þetta gerist).
Nokkur ljós eru á mælaborðinu og voru þar fyrir, það eru ABS, traction ljósið, bremsuljósið og airbag ljósið.
Með fyrir fram þökk, Vilmar
