Ég er með 16" felgur fyrir vetrardekk, enda passa minni dekk ekki undir e39 540. Dekkin sem eru á felgunum núna eru handónýt, nánast slétt og allir naglar farnir. Stærðin á þeim dekkjum er 225/60/16.
Ég hef um nokkrar tegundir dekkja að velja:
-Nexen Winguard 231
-Nokian Hakka 4
-Michelin Alpin a3
-Michelin X-Ice
-Interstate IWT2
Hvaða dekk af þessum mynduð þið segja að séu skást ? Hvaða stærð mælið þið með fyrir 16" ?
ATH. Ég er ekki að leita að meðmælum um aðrar dekkjategundir en þær sem ég tek fram fyrir ofan.
Takk!





