Hafa menn einhverja reynslu af þessum forritum og vilja deila einhverjum sniðugum upplýsingum ?



geirisk8 wrote:Hefurðu farið til Eðalbíla og látið lesa af bílnum ? Þetta er sama forritið og þeir eru með (og öll önnur umboð) þar sem maður getur lesið af bílnum, leiðrétt villur, fundið hvað virkar ekki og kóða allan fjandann.
DIS er forritið sem les af bílnum og lagar villur. Ef eitthvað virkar ekki hjá þér þá finnur það út nákvæmlega hvers vegna það virkar ekki og segir þér til um hvaða hlutur er bilaður.
SSS er kóðunarforritið. Ég veit lítið um það og hef ekki prófað en þar getur maður t.d. stillt hvort bíllinn pípi þegar þú læsir honum, stillt hvort hurðirnar læsist þegar þú keyrir af stað (eins og er í USA) og MARGT fleira.
Ég á ennþá eftir að setja þetta upp í tölvuna og prófa.
Með þessu get ég gert ALLT það sama og þeir hjá Eðalbílum geta þegar þú ferð til þeirra, borgar 3.900kr til að láta lesa af bílnum. En ég get einnig gert mun ítarlegri hluti en þeir bjóða þér uppá þegar þú ferð til þeirra.
Ég hef reynt að finna upplýsingar um hvað sé hægt að gera en hef ekki tekist að finna ennþá. Það kemur í ljós þegar ég kem þessu í gang og tengi við bílinn minn.

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."

slapi wrote:Hvernig haus ertu að nota ?
ps passaðu bara að fara þér ekki að voða í þessu. Þó forritið er nokkuð einfalt er vel hægt að fara sér að voða í SSS td.



geirisk8 wrote:slapi wrote:Hvernig haus ertu að nota ?
ps passaðu bara að fara þér ekki að voða í þessu. Þó forritið er nokkuð einfalt er vel hægt að fara sér að voða í SSS td.
Já ég ætla að fara mjög varlega í allar framkvæmdir. Til að byrja með mun ég t.d. lesa af honum og skoða bara hvers konar kóðun er hægt að gera. Ég er ekki með neinn "haus" því þetta er hackað forrit. Náunginn sem seldi mér þetta útbjó þetta þannig að forritið haldi að GT1 sé tengt við og þannig er nóg að nota 20- eða 16 pinna ODB2 EDIABAS snúru sem ég tengi með millistykki í USB. Snilld ? Jebb! Hann ætlar meira að segja að installa þessu "remotely" fyrir mig þannig að ég þarf ekki að standa í því.




Users browsing this forum: No registered users and 16 guests