Ég er að reyna að ná þessum blessaða ónýta KONI dempara úr ströttanum hjá mér.
Gengur ekkert sérstaklega vel þar sem þetta var tight fit ofan í..
Ég er búinn að setja rónna sem er á demparanum upp á og skífu og berja á þetta og hvað eina,
Málið er að ég vill ekki þjösnast mikið á rónni upp á að skemma hana þar sem þetta er spes ró fyrir coilover systemið, hún er mjórri en venjulegar rær.
Þannig mig vantar eiginlega 14 mm ró (ekki nema að það sé tommumál á Koni dempurum??)
Er einhver sem getur bjargað mér með svona ró í kvöld eða á morgun. Ég verð að ná demparanum úr sem fyrst.
Eru menn líka með góð ráð til að ná svona dempara úr?
Loka tilraun verður að komast í skrúfstykki, setja aðra ró á ásamt skinnu og reyna að hjakka þessu af.




