Sælir.
Lenti í því óheppilega atviki þegar ég var að sækja vin minn á rúntinn í kvöld að allt í einu vildi hurðin ekki lokast, svo hann fiktaði aðeins í handfanginu og lokaði en núna vill hurðin ekki opnast!
Það er alveg eins og að hún er í lás. Læsingarpinnin fer niður og upp aftur ef maður togar í handfangað að innan og fylgir samlæsingunum alveg, en hurðin opnast ekki, hvorki með handfanginu að innan né að utan.
Um er að ræða hægri hurðina að framan.
Eruð þið félagar með einhver ráð varðandi hvernig ég get leyst þetta vandamál? Er mögulegt að taka hurðaspjaldið af með hurðina lokaða eða er þetta eitthvað sem ég ætti að bara að láta sérfræðingana hjá Eðalbílum tækla?


