Jæja, þessi rann í gegn um skoðun án athugasemda í morgun.
Það er samt að pirra mig svolítið að mig langar alltaf að fara að gera eitthvað meira við þennan bíl. Lækka, setja í bsk og eitthvað svona.
Hef nóg að gera með það í Touring. Langar þess vegna svolítið að skipta þessum fyrir einhvern vísitölubíl sem er tilbúinn í veturinn.
Ef þið eigið eitthvað svoleiðis og viljið Coupe þá megið þið hafa samband.