Orðið langt siðan finnst manni sem maður var hérna inná og vantar mig hjálp ykkar BMW snjöllu gúrúa
Keypti mér nýverið E36 með M52B25 mótor og bsk kassa

Nr.1.
í honum er þessi "stóra" tölva og hún hendir á mig villu um að chekka á vatninu í vatnskassanum.
þegar þetta kom fyrst var ég ný kominn heim eftir að hafa sótt bílinn hálfa leið til Akureyrar
ég drap á bilnum fór inn og skellti í mig burger og pissaði (leið góður tími inná milli) fyllti svo vatn á 2L flösku fór út opnaði vatnskassan og bætti á hann, eftir rúmlega eina og hálfa flösku var hann komin upp að "Full" kvarðanum eða riflunum sem standa útur þarna a´hliðini.. daginn eftir og nú á öðrum degi hendir hann ennþá þessarri villu á mig og ég er farinn að halda að þetta sé skynjarinn...
Nr.2.
Það er farin hjólalega farðegamegin að aftan, hvar fæ ég ódýrast í þessa bila á klakanum?
billinn er með diskum að aftan btw.
ef einhver gæti átt naf með legu í lagi fyrir mig frekar?
Nr.3.
í honum eru þessi svokölluðu speygla angel eyes ljós og þau eru með vesen, plöggin aftaná þeim virðast ekki vilja halda jörð almennilega og eru alltaf að detta út og inn, ef einhver á orginal ljós handa mér og vill selja mér þau eða gefa þá væri ég þyggjandi glaður manni
Nr.4.
langar í læsingu, en ég finn hvergi hvaða drif ég er með, er littla eða stóra undir þessu kvikindi?
og úr hvaða bmw passar í minn tilþess að stækka sjóndeildarhringinn aðeins?
Nr.5.
Var að muna eftir einu örðu
Billinn pípir á mig rétt eftir að maður hefur sett í gang og byrjar að keyra, cirka 1-2 mín eftir að maður startaði
getur verið að þetta sé "low fuel" dæmi? samt hefur hann gert þetta svo yfir daginn á cirka klukkutima fresti.
Nr.6.
hvað er algengt að fari í bensíntönkunum eða leiðslunum í þessum bílum??
það er að dropa hjá mér bensin ef ég filli uppí topp, er að koma ofan af tanknum. Tók bara eftir að það dropaði þegar ég var inni að borga.
Nr.7
Nýjasta nýtt í sambandi við E36 og vandamálin hans
Það kom alti einu einn morguninn hjá mér á leið í skólan "Insert time" í stóru tölvuna, er þetta eitthvað í sambandi við tímakeðjuna því það er ekki langt síðan að hún var skoðuð!





