Ég spyr í kjölfari þess að ég þekki einn sem var stoppaður fyrir að vera með blá stöðuljós á bílnum sínum og var að skrifa um það á facebook. Annar aðili svaraði honum og vitnaði: http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/We ... enDocument
07.01. (15) 1.mgr
Litur: Skal vera hvítur á framvísandi ljósi en rauður á afturvísandi ljósi. Heimilt er að á ökutæki frá Bandaríkjum Norður-Ameríku og Kanada sé litur framvísandi stöðuljóss rauðgulur.
Nú keypti ég nýlega framljós frá Ümnitza með Orion V.2 angel eyes sem eru hvít með bláum keim. Þau virka sem stöðuljós og eru tengd þannig. Ljósin eru rosalega björt.
Hafa menn reynslusögu af t.d. þegar farið er með bílinn í skoðun ? Ég hef t.d. margoft mætt lögreglunni og hún aldrei spáð í ljósunum.


