Þetta var alveg hörkumæting, mjög góður hittingur.
Það er greinilegt að klúbbmeðlimir kalla ekki allt ömmu sína þegar að því kemur að mæta á samkomur, skófla einum börger í sig og þeysa svo um göturnar,
með blæjuna niðri
Þetta var stórgaman, mjög góð hópferð niður í bæ og svo niður Laugaveginn.
Náðum að pikka Skúla pool-meistara upp á Select, urðum að finna hann þar sem hann var búinn að lofa að mæta á næstu samkomu.
Hlakka strax til næstu samkomu, þetta var alveg grand.