Jæja, núna þyrfti ég að koma bílnum í skoðun en því miður þá logar airbag ljósið útaf einhverjum skrínilegum ástæðum. Er víst mjög algengt vandamál í þessum bílum. Hvað get ég gert til þess að gera hann skoðunarhæfan? Soldið vesen að laga þetta, þarf að lesa af honum og svona en þegar ég fór með bílinn í ástandsskoðun þá spjallaði ég við skoðunarkallinn um þetta og hann sagði mér bara að taka peruna úr, líma yfir SRS Airbag merkin á stýrinu og dashboardinu og að þeir mættu ekki fjarlægja límmiða eða svona úr bílnum og hann mundi þá komast í gegnum skoðun.
Er eitthvað vit í því sem skoðunarmaðurinn sagði mér?


