Þá er kominn tími til að skrifa hinstu kveðju fyrir þennan. Ég er búinn að fara í gegnum 5 stig sorgar með þennan.
1-Afneitunin

- Þegar konan hringdi var auðvitað fyrsta hugsun mín að hún væri í lagi og svo að þetta væri nú ekki mikið tjón á bílnum.
2-Reiðin

- Út í gaurinn sem reyndi að aka í gegnum bílinn minn þar sem hann var stopp á ljósum. Af hverju ég var að lenda í þessu?
3-Samningar

- Þegar ég taldi mér trú um að ég gæti keypt bílinn og gert við hann sjálfur. Það átti ekki að vera enda tjónið mikið.
4-Sorgin

- Þegar það var ljóst að ég ætti ekki eftir að eiga e39 540ia eftir þetta.
5-Samþykktin

- Þegar ég var búinn að fá 1300k tilboðið frá Vís (650k og ég héldi bílnum) var ég búinn að samþykja stöðuna og farinn að leita mér að nýjum bíl.
Þú reyndist mér alltaf svo vel og við gengum í gegnum svo margt. Ég mun sakna þín...
Það er annars von á nýjum þráð í bílum meðlima, ég er búinn að kaupa bíl
Bíllinn verður verður mjög líklega boðinn upp á mánudaginn kemur. Tjónið er meira en útlitið segir þ.a. einhver mun yfirborga fyrir hann.