Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Hér skal spjalla um BMW.

Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby jonthor » Thu 12. Aug 2010 11:38

http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa ... er-ad-koma

Chris Bangle er fæddur 1956 í Ohio í Bandaríkjunum.

Hann komst fyrst í fréttirnar þegar BMW samsteypan réð í fyrsta skipti erlendan bílahönnuð til að stjórna hönnunarteymi samsteypunnar. Þetta var í október 1992. Það var síðan í byrjun síðasta árs sem hann hætti starfi sínu eftir 17 ár hjá BMW til að helga sig sínum áhugamálum sem snúa m.a. að samgöngum einstaklinga í framtíðinni.
Í dag eru allar bílgerðir BMW runnar undan rifjum Chris Bangle jafnt sá minnsti og uppí X6 sem er nýjasti fjórhjóladrifni jeppinn frá verksmiðjunum í bæjaralandi. Hann hefur ávallt verið mjög umdeildur vegna þeirra leiða sem hann hefur valið í hönnun BMW bifreiða og í hans tíð varð til það hugtak sem kallast í dag „flame surfacing“ og er notað um ákveðið útlit og flæði í flötum bifreiða.

Það er ekki nóg með að Chris hafi hannað ásamt sínu teymi alla bílalínu BMW heldur var hann líka ábyrgur fyrir hönnuninni á nýjum Mini Cooper sem er almennt talin snilldar vel heppnuð og hönnun hans á nýja Rolls Royce bílnum var einnig talin til tíðinda.
Þetta hefur samt ekki alltaf verið dans á rósum og Chris er einn fárra bílahönnuða sem ítrekað hafa orðið valdir að uppnámi áhugamanna um BMW bifreiðar og margoft er búið að safna saman undirskriftalistum þar sem skorað er á stjórn BMW að reka hönnuðinn fyrir að vera ekki „ rétttrúaður“ í nálgun sinni.

Hann getur þó stoltur litið um öxl þar sem með hans hönnun komst BMW í fyrsta sæti yfir mestu seldu lúxus bifreiðar heimsins og í fyrsta sinn varð Mercedes Bens að gera sér annað sætið að góðu.
Þegar ég talaði við Chris í vikunni þá sagði hann mér að hann hefði margoft unnið með Ólafi Elíassyni listamanni og það var augljóst að hann telur Ólaf mikinn snilling í sinni list. Tilefni þess að við töluðum saman er að Chris hefur fallist á að koma til landsins og vera ræðumaður á ráðstefnunni Driving Sustainability sem haldin er um miðja september í Reykjavík.

Á ráðstefnunni mun hann fjalla um samgöngur framtíðarinnar og m.a. hvernig takmarkalausar kröfur um aukið öryggi í bifreiðum gerir framleiðsluverð bifreiða svo hátt að bílar eru orðnir munaðarvara í mörgum löndum. Hann hefur aðra sýn sem hann mun deila með okkur.
Það er hvalreki fyrir áhugafólk um samgöngur og iðnhönnun að fá mann sem kallaður hefur verið Steve Jobs bílahönnunar til landsins þar sem tími mun gefast til að spjalla um framtíðina sem nálgast hratt.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby arnibjorn » Thu 12. Aug 2010 11:41

Athyglisvert....

Ætli við getum fengið hann til að mæta á samkomu? :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby rockstone » Thu 12. Aug 2010 11:52

arnibjorn wrote:Athyglisvert....

Ætli við getum fengið hann til að mæta á samkomu? :lol:


:lol:
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby fart » Thu 12. Aug 2010 12:01

rockstone wrote:
arnibjorn wrote:Athyglisvert....

Ætli við getum fengið hann til að mæta á samkomu? :lol:


:lol:

Eru margir Bangle bílar og aðdáendur í Kraftinum :lol:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby Logi » Thu 12. Aug 2010 12:06

eeee nei :lol:
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby fart » Thu 12. Aug 2010 12:07

Logi wrote:eeee nei :lol:

Ég hélt að ég væri einn í því lið, hugsanlega Þröstur líka :thup:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby Thrullerinn » Thu 12. Aug 2010 13:02

fart wrote:
Logi wrote:eeee nei :lol:

Ég hélt að ég væri einn í því lið, hugsanlega Þröstur líka :thup:


Hehe nákvæmlega ;)
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby Jón Ragnar » Thu 12. Aug 2010 13:07

Ég fíla Banglebílana

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby jonthor » Thu 12. Aug 2010 15:09

Thrullerinn wrote:
fart wrote:
Logi wrote:eeee nei :lol:

Ég hélt að ég væri einn í því lið, hugsanlega Þröstur líka :thup:


Hehe nákvæmlega ;)


Þeir uxu á mann, finnst E60 t.d. í dag afskaplega fallegur, eins og ég var ekki hrifinn af honum fyrst.

Var aldrei sáttur við sjöuna samt, og þristinn ekki alveg heldur, fyrir utan e92 sem er afskaplega vel heppnaður.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby SteiniDJ » Thu 12. Aug 2010 16:18

John Rogers wrote:Ég fíla Banglebílana


Jebb, finnst þeir virkilega flottir. Held að við séum fleiri en margan manninn grunar.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby íbbi_ » Thu 12. Aug 2010 17:00

ég tel bangle bimmana hafa valdið kaflaskiptum í útliti bíla yfir höfuð.. E60 boddýið er eitthvað díteilaðasta boddý á bíl sem ég hef séð..
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby Schulii » Thu 12. Aug 2010 18:32

Alltaf fílað Bangle!! :thup: Jafnvel 2004 þegar e60 var nýkominn og margir ansi óhressir :lol:
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby íbbi_ » Thu 12. Aug 2010 21:27

man eftir að hafa séð E65 árið 01/02 og trúði varla eigin augum... og skildi ekki lúkkið.. náði því svo og hef dáðst af þeim síðan. e60 hef ég alltaf fýlað, en man að ég var ósáttur við innrétinguna í þeim ef þeir eru ekki rétt búnir.. finnst útlitið á þeoim samt verða ennþá betra með aldrinum..
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby Grétar G. » Thu 12. Aug 2010 21:51

E60 8) :thup:
E30 M20B25 TÚRBÓ
E36 ///M3 Daytona Violet
E65 735i LOADED
Range Rover Sport Supercharged
Yamaha YZF R6 '07
E39 ///M5 & Evo V & E60 545i & 300C SRT-8 (Seldir)
User avatar
Grétar G.
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2287
Joined: Tue 13. May 2008 01:10
Location: Ghettó BRH

Re: Chris Bangle á leiðinni til Íslands

Postby doddi1 » Thu 12. Aug 2010 22:25

ég er að fíla Bangle

gerði það ekki fyrst...

fáum hann í alvöru talað á samkomu :D bmw klúbbur íslands...

hann væri eflaust ekkert móðgaður ef hann yrði spurður hvort hann hefði áhuga á að heiðra okkur með nærveru sinni.
það er betra að spyrja og vera heimskur í eina mínútu en að þegja og vera heimskur alla ævi

óstaðsettur í bíl
doddi1
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1348
Joined: Wed 07. Jun 2006 18:28

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests