Jæja ætli það sé ekki tími til að gera sig aðeins virkari á þessu spjalli
Fékk mér þennan fyrir um ári síðan
BMW
523iA - M52B25 170 hp
Árgerð 1997, kemur af færibandi 25.10.96 kl. 15:11 (skráður samkvæmt framleiðanda '97)
sskOxford green (Oxfordgruen) - Metallic
Leit svona út daginn eftir kaupin




Þegar ég fékk bílinn var ýmislegt sem hrjáði hann, sló út 3-4 cyl. og gekk óeðlilega, drap stundum á sér og neitaði í gang, afturhurðin hægra megin neitaði að opnast, húddið vitlaust stillt, bíllinn titraði eins og ég væri á þvottabretti þegar ég keyrði á Miklubrautinni og allskonar smotterí.
Lenti svo í því í September 2009 að mismunadrifið læstist þannig að ég tók bílinn af númerum og dundaði í honum framm í Desember, skipti um ljós, nýru og allskonar dund, svo fann ég annað drif undan samskonar bíl, eeeen vegna spenningsins við að komast loksins út aftur þá gleymdi ég að athuga með olíuna á drifinu og bíllinn fór ekki lengra en úr Grafarvogi og niður Ártúnsbrekkuna þegar pinionslega stiknaði og bíllinn stopp. Það kvöld (frá 22 til 5 sirka) fór í það eitt að reyna að koma bílnum aftur heim
Skipti um legur og lagaði drifið og það ævintýri er búið í bili
Það sem ég er búinn að gera við bílinn er:Fjarlægði spacera og skipti um felgubolta allan hringinn
Skipt um háspennukefli og sveifarásskynjara
Læsing á hægri afturhurð löguð
Rúðuþurrkuarmar sprautaðir svartir
Nýr lykill keyptur hjá B&L en þeir pöntuðu service key þannig að ég þurfti að panta nýjan.. með afslætti
Schmiedmann aðalljós með angel eyes (allt annað að sjá bílinn

)
Schmiedmann afturljós
Schmiedmann black chrome facelift nýru. (Húddið er víst skemmt eftir fyrrverandi eiganda þannig að nýrun eru skökk, er á planinu að fá nýtt húdd)
Eyddi um 2 vikum í að mála felgurnar og daginn eftir að þær voru tilbúnar var Pitstop svo skemmtilegt við mig að rispa ALLAR felgurnar og ekki lítið...
Framstuðarinn var rifinn undir þegar ég fékk hann, lakk brotið, rispað og soldið steinkast þannig að ég lét laga hann og sprauta
Fékk neon ljós í jólagjöf frá litla bróðir og þar sem bíllinn stóð inní skúr á búkkum (meðan bíllinn var driflaus) og ég hafði ekkert annað að gera þá fór ég í að tengja þau undir sætunum, takki til að kveikja og slökkva, allar leiðslur faldar og öryggi í skottinu við geymi. Vel frá gengið
Lét VIP filma allar rúður nema framrúðu með dekkstu filmunum sínum, var svo tekinn og þurfti að fjarlægja filmurnar úr hliðarrúðum frammí:(
Svo filmaði ég sjálfur yfir bremsuljósið í afturrúðunni með útskornu BMW, kemur frekar vel út
og svo er örugglega eitthvað meira sem ég er að gleyma.
Nokkrar myndir af breytingum
Nýi (rétti) lykillinn og sá gamli

Stuðarinn nýkominn úr sprautun (var að pússa felgurnar fyrir aftan)

Nýju ljósin og nýrun (skekkjan í nýrunum sést hérna)


Angel eyes-in eru missterk á þessari mynd þar sem bíllinn var rafmagnslítill og ekki í gangiVerið að koma neonljósasysteminu í

kemur nokkurn veginn svona út frammí

Afturljósin (teaser mynd, sjást ekki nógu vel)

Svona var hann daginn eftir filmun


Filmubúturinn í bremsuljósinu


Nokkrar úr smá "photoshooti" sem við félagarnir fórum í kvöldið sem ég var tekinn fyrir filmurnar frammí






Nýkominn á Bíladaga 2010 (símamyndir)


lenti í þessu skemmtilega atviki á leiðinni norður

Síðustu myndir sína hvernig hann lítur út í dag
Svo lenti ég í því skemmtilega atviki á mánudeginum eftir bíladaga að vatnskassinn ákvað að springa þannig að það var ekkert annað í stöðunni en að kaupa nýjan kassa og var hann settur í um síðustu helgi en fann það svo út að heddpakkning er líklega að fara þannig að breytingarlistinn verður að fá að hinkra aðeins lengur
Þessi skemmtilegu atvik, auk skemmda á krossaranum eftir góða byltu, reikningsins eftir bíladaga (þ.m.t. dágóður styrkur til lögreglunnar), vinnuslys, hjartaáfall og svo loks veikindi á hundinum hafa sett ansi stórt strik í reikninginn þannig að nýju felgurnar sem ég var búinn að finna verða að fá að bíða áfram í búðinni
En það sem átti að vera á leiðinni voru Eye lids, Shadowline listar í kringum rúðurnar, nýir kastarar, mála felgurnar uppá nýtt eða powder coata (nota sem vetrarfelgur) og svo kannski lip á framstuðarann og efra lippið á afturrúðuna.
Er ekkert alltof viss á að ég klári þennan lista þar sem mér langar að fara að fá mér e30 eða e36 og fara að skerpa á kunnáttunni í driftinu
Megið endilega koma með comment um hvernig ykkur fyndist hvaða litur færi felgunum best og ef einhver veit um einhverja skemmtilega driftgræju sem er til í skipti þá er nóg pláss í pm

Svo ef einhver var að spá í einkanúmerinu þá stendur það fyrir BMW
BIVIVV = BMW
B
IVI = M
VV = W
FramtíðarplönDekkja ljósin og fá Angel eyes
Eye lids
Xenon í kastara
Glertopplúga
Shadowline listar??
Skella Dynavin spilara í bílinn
Svo ætla ég að skella 4,4l V8 úr 540 í bílinn nema fyrst ætla ég að bora hana út, skipta um innvols, hafa M5 kassa við (6gíra getrag beinskiptingu), setja supercharger við og LSD drif.
Það sem komið erFilmur (Mun filma hann aftur að framan)
Angel eyes framljós
Black chrome facelift nýru
Facelift smoked afturljós
Lip á framstuðara
Roof spoiler
Aðrar felgur -
18" BBS RS II
Leðurinnrétting
Lækkun
Græjur komnar að hluta til. 2x 12" BOSS keilur (2.300W 1.150 RMS hvor), 3.000W magnari, alpine hátalarar frammí ofl. komið
Er enn að ákveða hvort ég ætli í shadowline eða ekki.
_________________
Rafnar S. ZZ-658 1999 BMW M5 [BIVIVV] (Gamli Romeo)
Gamlir
RU-479 1997 BMW 523iA (Gamli BIVIVV) - Rifinn og skel hent í Noregi
1999 - BMW 540i/6 (driftbíll, seldur í Noregi)
1991 - BMW 850ci - Ónýtur eftir árekstur í Noregi
