John Rogers wrote:Þarf maður að keyra leiðinlega bíla bara á veturna?

Nkl, þetta er líka ríkjandi viðhorf hérna í Svíþjóð, og ég skil þetta bara alls ekki. Þetta er "bara" bíll, hvorki minna né meira en það.
Ég keyri reyndar ekki mikið en fór allt sem ég þurfti að fara síðasta vetur sem var NB einn sá allra versti hérna síðastliðna áratugi hvað varðar snjó og langvarandi frosthörkur. Góð vetrardekk, spólvörnin hjálpar og góður bílstjóri hjálpar væntanlega líka. Mínir bílar eru keyptir til að keyra þá, rain sem og shine, þeim er hinsvegar strokið vel inn á milli, enda alltaf hreinir og í toppstandi.
Ef þetta er hugsunarhátturinn finnst mér amk ég allt eins geta farið og keypt Grand Lúser eða hvað sem er og haft það leiðinlegt allt árið.
G