ömmudriver wrote:Gullfallegur bíll og ekki setja filmur í hann!
Ég var með 18" felgur undir sjöunni minni og þær hurfu undir henni en svo var Danni pera(X-Ray) með 19" felgur undir sinni og það alveg smellpassaði enda var sjöan hans líka lækkuð.
Ég held að þessi sé eitthvað lækkaður líka. Er ekki viss. Væri fínt ef einhver sem þekkti sögu bílsins gæti staðfest það.
Svo eru fleiri minni háttar hlutir að hrjá hann líka eins og t.d. framrúðan bílstjóramegin fer ekki aftur upp ef maður setur hana of langt niður og sætishitarinn sömu megin virðist ekki virka eða þá að hann er bara svona daufur.
Svo er farið að sjást á leðrinu fram í. Spurning hvort að góð professional hreinsun gæti frískað aðeins upp á því
Meira update seinna. (Fer allt eftir því hvað Hlynzi verður duglegur ;P)










