Semsagt, bíllinn hjá mér er loksins kominn í gang eftir swap, þótt að það sé rooosalega hraður gangur, en hitamælirinn rýkur í botn um leið og ég svissa á bílinn. Aron Jarl henti rafkerfinu á vélina, tengdi og víraði en honum tókst ekki að fá hitamælinn til að virka.
Ég er búinn að tjékka á öllum öryggjum, nema það séu einhver öryggi annarstaðar en í húddinu, en kunnátta mín á rafkerfum og því tengdu nær bara ekki mikið lengra. Samkvæmt Jarlinum voru bara sex vírar í spíssaloominu en sjö á móti, gæti það tengst þessu eitthvað?
Er ekki einhver e30 m20 swap guru sem hefur lent í þessu áður eða kann einhverja töfralaus?
