Meðlimaskráning í BMWKraft.
Jæja nú er komið að því að skrá meðlimi. Við höfum ákveðið að taka upp væg meðlimagjöld, sem eru 2500 kr. fyrir fyrsta árið. Þeir sem gerast meðlimir fá meðlimakort, sem gildir sem afsláttur hjá fyrirtækjum eins og B&L, Tækniþjónustu Bifreiða, Nesdekk og fleiri munu koma von bráðar.
Meðlimir BMWKrafts munu líka njóta þess að styrkja klúbbinn í því að fá ódýrara á alla viðburði á vegum klúbbsins, s.s. bjórkvöld, poolmót ofl.
Meðlimir munu ganga fyrir í sambandi við alla umferð um vefinn og verða ákveðin svæði aðeins opin fyrir gilda meðlimi BMWKrafts.
Meðlima gjaldið er s.s. 2500 kr. fyrir fyrsta árið og fylgja BMWKrafts límiðar með í því gjaldi (einn í afturrúðu eða tveir í hliðarrúðu) og til að komast inní skráningarformið er hægt að smella hér: Skráning í BMWKraft
Munið bara að millifæra skv. leiðbeiningum á skráningarsíðunni strax eftir skráningu.
Frá og með í dag eru gömlu kortin ógild!
Ef að einhver er forvitinn um ástæður þessa ákvörðunar þá er hún einföld. Það að halda svona klúbbi gangandi krefst þess að eitthvað fjármagn sé til staðar. Borga þarf gjöld af lénum og vefsvæðum og einnig auðveldar það að halda skemmtanir og önnur mót meðlimanna. Meðlimir þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að fé þeirra sé glatað þar sem að mikill sparnaður fæst með notkun kortanna. Þar að auki er umframpeningur notaður til þess að greiða niður skemmtanir fyrir meðlimi.
p.s. þeir sem skrá sig fyrir miðja næstu viku geta átt von á mjög skemmtilegum glaðningi.
Þeir sem skrá sig fyrir pool mótið þurfa bara að borga 700 kr. þátttökugjald í stað 1000 kr.


