Sælir,
Nú væri ekki slæmt að fá smá hjálp frá ykkur sérfræðingunum.
Bíll: BMW E39 M5
Ég er í vandræðum með hljóð í bílnum hjá mér, það heyrist ekkert í hátölurunum, en útvarpið finnur samt stöðvarnar og því ætti það ekki að vera ónýtt.
Það er búið að aftengja síman og snúrurnar liggja eftir, ég er búinn að prófa tengja síman aftur en fæ hann ekki til að virka. Ég skipti um öryggi þar líka.
Ég tók útvarpið úr bílnum í skottinu og skipti um öryggi, en ég finn ekki öryggi í magnaranum.
Mér var sagt að þetta gæti verið öryggi í magnara, eða þá að snúrurnar úr símanum liggi saman og því sé síminn að stilla á mute sjálfkrafa.
Eru einhverjar fleiri hugmyndir um hvað gæti verið að ? er einhver stilling í sjálfri tölvunni, er með litla sjónvarpið..
Í von um skjót svör þar sem það er hundleiðinlegt að heyra ekkert.

