F1: Ralf líklega til Renault!

Hér skal spjalla um BMW.

F1: Ralf líklega til Renault!

Postby Benzari » Mon 08. Mar 2004 21:55

mbl.is

"Umboðsmaður ökuþórsins Ralfs Schumachers segir að Schumacher muni fara frá Williamsliðinu eftir þetta keppnistímabil og ganga til liðs við Renault. Segir umboðsmaðurinn við þýska blaðið Bild að búið sé að ganga frá samningi við Flavio Briatore, liðsstjóra Renault, þar að lútandi og aðeins sé formsatriði að skrifa undir.
Ralf er 28 ára yngri bróðir Michaels Schumachers, heimsmeistara í kappakstri. Ralf hefur verið óánægður hjá Williams að undanförnu og gagnrýndi nýlega Frank Williams, liðsstjóra Williamsliðsins fyrir óliðlegheit í samningum. Sagði Ralf, að Williams sakaði sig um að hafa aðeins áhuga á peningum.

„Frank Williams segir að ég sé peningagráðugur. Það er hlægilegt. Hann veit að ég myndi fallast á að lækka launin mín um helming," sagði Ralf, sem endaði í 4. sæti á stigalista ökumanna á síðasta keppnistímabili. "
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Mon 08. Mar 2004 22:52

Þetta kemur ekki á óvart - ansi er ég viss um að harkan í Williams sé að koma í bakið á honum eina ferðina enn.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby jens » Mon 08. Mar 2004 23:35

Hverjir eru líklegir til að keyra fyrir Williams á næsta ári...
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby Jss » Mon 08. Mar 2004 23:36

jens wrote:Hverjir eru líklegir til að keyra fyrir Williams á næsta ári...


Það er reyndar stóra spurningin. :hmm:

Ég býð mig fram. :D
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Aron » Mon 08. Mar 2004 23:41

hvert fer coultard?
Aron
s.894-2066

E39 523i 19" BBS CH
E36 318i 17" BBS RX
User avatar
Aron
Getawaybílstjóri
 
Posts: 832
Joined: Sat 31. May 2003 11:10
Location: rvk

Postby jens » Mon 08. Mar 2004 23:44

Ekki Coultard !!!
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby Jss » Mon 08. Mar 2004 23:49

jens wrote:Ekki Coultard !!!


Sammála, ég vil ekki Coulthard til BMW-Williams.
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Gunni » Tue 09. Mar 2004 00:02

Það er samt furðulegt að renault séu að fara að fá ralfy, það liggur við að hann sé ekki betri en trulli.... hann er allavega pottþétt ekki betri en alonso!
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby jens » Tue 09. Mar 2004 01:10

Gunni skrifar:
það liggur við að hann sé ekki betri en trulli.... hann er allavega pottþétt ekki betri en alonso!

Gæti ekki verið meira sammála.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby bebecar » Tue 09. Mar 2004 08:39

Hann fer eflaust í stað Trulli nema auðvitað að Alonso sé á förum til Williams - sú blanda gæti verið efni í heimsmeistara!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Jss » Tue 09. Mar 2004 09:18

bebecar wrote:Hann fer eflaust í stað Trulli nema auðvitað að Alonso sé á förum til Williams - sú blanda gæti verið efni í heimsmeistara!


Ég sé ekki fyrir mér að Alonso sé á förum frá Renault í nálægri framtíð. Flavio Briatore er nú einu sinni umboðsmaðurinn hans. :?
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby bebecar » Tue 09. Mar 2004 09:21

Já, en er það ekki málið - hann er umboðsmaður hans fyrst og fremst. Þetta er einmitt týpan sem að sinnir honum vel, hann fengi eflaust betur borgað hjá Williams, það eru ekki margir ökuþórar með reynslu sem koma til greina hjá Williams og maður sér ekki fyrir sér að þeir taki tvo nýja óreynda ökumenn.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Jss » Tue 09. Mar 2004 09:22

bebecar wrote:Já, en er það ekki málið - hann er umboðsmaður hans fyrst og fremst. Þetta er einmitt týpan sem að sinnir honum vel, hann fengi eflaust betur borgað hjá Williams, það eru ekki margir ökuþórar með reynslu sem koma til greina hjá Williams og maður sér ekki fyrir sér að þeir taki tvo nýja óreynda ökumenn.


Ég sé það samt sem áður ekki fyrir mér að Alonso sé á förum frá Renault en fátt annað en tíminn leiðir það í ljós. ;)
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Logi » Tue 09. Mar 2004 13:47

Tekið af mbl.is wrote:Flavio Briatore, liðsstjóri Renault-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum, bar í dag til baka að hann hefði átt í viðræðum við Ralf Schumacher, ökuþór Williams-BMW. Þýska blaðið Bild hafði í gær eftir Willi Weber, umboðsmanni Schumachers, að Ralf væri búinn að ganga frá samningi um að aka fyrir Renault á næsta keppnistímabili og aðeins væri eftir að skrifa undir.
„Ég hitti Willi Weber í Melbourne og við ræddum saman - við erum vinir og það er eðlilegt," segir Briatore í yfirlýsingu. „En við ræddum aldrei, og höfum aldrei rætt, að Ralf Schumacher aki hugsanlega í Renaultbíl."

Schumacher hefur átt í viðræðum við Williams um endurnýjun samnings. Fréttir herma að hann fái nú 12 milljónir dala í árslaun og vilji fá 15 milljónir dala.

Búist er við að Renault endurnýi ekki samning við Jarno Trulli fyrir næsta keppnistímabil og hefur Mark Webber, ökumaður Jaguar, verið orðaður við liðið. BMW Williams hefur einnig sýnt Webber áhuga.

2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests