Sviss vesen í E36

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Sviss vesen í E36

Postby Johnson » Mon 28. Jun 2010 21:20

Sælir, er að gera við bíl hjá félaga mínum sem er E36 '98 árgerð. Vandamálið lýsir sér þannig að hann var að koma heim til sín og
var að drepa á bílnum en lykillinn snérist bara í hringi í svissinum. Hann endaði á því að taka pólinn af geyminum og því er bíllinn
"fastur" með svissað á bílinn. Er þetta mjög algengt í þessum bílum? Hvaða part þarf hann að kaupa af þessari mynd?


Image
Enginn BMW í augnablikinu....
Johnson
Kassabílstjóri
 
Posts: 146
Joined: Tue 27. May 2003 18:53
Location: Hér og þar.. aðalega hér

Re: Sviss vesen í E36

Postby Elvar F » Tue 29. Jun 2010 19:03

Ég lenti í þessu um daginn.
Ég drap á bílnum í flýti og ljósinn og allt í mælaborðinu.
Þurfti að renna honum í gang og drepa á honum með því að nota kúplinguna.
Svissbotninn var farinn hjá mér kostaði bara 50 þúsund. :roll:
Elvar Freyr Þorsteinsson
BMW 318ia E46 seldur
BMW 325i E36 '96 seldur :argh:
BMW 316i E36 '96 seldur
BMW 520ia E28 '87 seldur
Elvar F
Kassabílstjóri
 
Posts: 231
Joined: Sat 03. Feb 2007 18:48
Location: Akureyri

Re: Sviss vesen í E36

Postby bErio » Tue 29. Jun 2010 20:55

Getur látið laga hann hjá neyðarþjónustunni
Það er smá trix að ná honum úr
Lenti líka í þessu
BMW E39 530D '03 ///M-Tech - Stations
BMW E39 540i '00 - Sedans

E39 k1ng
Sævar P.
User avatar
bErio
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3691
Joined: Mon 25. Sep 2006 09:39

Re: Sviss vesen í E36

Postby slapi » Tue 29. Jun 2010 21:07

Elvar F wrote:Svissbotninn var farinn hjá mér kostaði bara 50 þúsund. :roll:


Það er reyndar ekki svissbotninn sem fer heldur haldið utanum cylenderinn , lítið hak á því sem brotnar.
Mín ráðlegging er að kaupa nýjan , það eina sem er að þessu er að hakið brotnar þannig að ég sé ekki alveg neyðarþjónustan getur gert nema reynt að smíða upp hakið.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: Sviss vesen í E36

Postby Johnson » Wed 30. Jun 2010 11:54

Sjitt 50 kall! Margir í útlandinu virðast hafa lausn á þessu og er að spá í að reyna eitthvað af því áður en það verður eytt einhverjum
seðlum í þetta. Þessi segist hafa reddað þessu fyrir 1.18$ með því að bora í gegnum húsið og setja skrúfu í hak á "tumblernum"

http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... p?t=637372
Enginn BMW í augnablikinu....
Johnson
Kassabílstjóri
 
Posts: 146
Joined: Tue 27. May 2003 18:53
Location: Hér og þar.. aðalega hér

Re: Sviss vesen í E36

Postby ingo_GT » Wed 30. Jun 2010 15:45

Lenti í þessu um daginn,Hvað þá líka að stýrið festist bara í styris lás.

Endaði á því að ná mér í slípi rokk og skar allt helvítis stýríslásinn og svissinn í burtu svo ég gæti fært bílinn allavega :lol:

Fekk síðan næstum því gefins annað svona stýris dæmi með nýjum lyklum :mrgreen:

En þú getur tekið svissbotninn úr og startað og drepið á bílnum með skrúfujárni eða hverjum sem er,Svo þú getur notað bílinn þánga til þú færð þér nýtt :)
Bmw e36 323 Touring M-tech

Seldir
3 e39 523ia-540ia
8 e36 316-318-318is-320-325
2 e30 316-325
ingo_GT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2371
Joined: Wed 23. Jul 2008 02:26
Location: Í skúrnum eða á hlið


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 32 guests