PASSA ÞESSAR UNDIR 750i E38. Einhver til að hjálpa!!

Hér geturðu auglýst dekk og felgur undir BMW til sölu eða óskað eftir þeim

PASSA ÞESSAR UNDIR 750i E38. Einhver til að hjálpa!!

Postby valuru » Sat 12. Jun 2010 21:30

Sælir sérfræðingar,

Getur einhver hjálpað mér ég er að leita mér af felgum fyrir 750i árgerð 1999.

Er alveg nýr í þessum bransa. Svo betra að spyrja núna og vera vitlaus en spyrja ekki og vera alltaf vitlaus:-)

Hvað þýðir þetta á mannamáli:
Offset:
Gatadeiling:
5x120:
Staggerd:
Ef dekk eru 250/50-20
Þýðir það þá 25cm breidd-5cm lengd frá felgu að mynstri-20 tommur.

Einhver góðhjartaður tilbúinn að svara þessu.

Myndu þessar til dæmis passa undir 750i.

http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=16018

MBK
valuru
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 21
Joined: Wed 09. Jun 2010 22:03

Re: PASSA ÞESSAR UNDIR 750i E38. Einhver til að hjálpa!!

Postby sjava » Sat 12. Jun 2010 21:31

Image
sjava
Getawaybílstjóri
 
Posts: 710
Joined: Sat 16. May 2009 19:44

Re: PASSA ÞESSAR UNDIR 750i E38. Einhver til að hjálpa!!

Postby valuru » Sat 12. Jun 2010 21:36

sjava wrote:take this
viewtopic.php?f=2&t=45091



They are sold, thx
valuru
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 21
Joined: Wed 09. Jun 2010 22:03

Re: PASSA ÞESSAR UNDIR 750i E38. Einhver til að hjálpa!!

Postby JOGA » Sat 12. Jun 2010 22:49

valuru wrote:Sælir sérfræðingar,

Getur einhver hjálpað mér ég er að leita mér af felgum fyrir 750i árgerð 1999.

Er alveg nýr í þessum bransa. Svo betra að spyrja núna og vera vitlaus en spyrja ekki og vera alltaf vitlaus:-)

Hvað þýðir þetta á mannamáli:
Offset:
Gatadeiling:
5x120:
Staggerd:
Ef dekk eru 250/50-20
Þýðir það þá 25cm breidd-5cm lengd frá felgu að mynstri-20 tommur.

Einhver góðhjartaður tilbúinn að svara þessu.

Myndu þessar til dæmis passa undir 750i.

http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=16018

MBK


Offset segir til um hvar "andlitið" á felgunni er staðsett. Þetta segir til um fjarlægð frá miðju.
Þannig standa felgur með lágt offset utar í hjólaskál (andlit nær miðri felgu) en þær með hátt offset innar í hjólaskál.
Offsett 20 þýðir að andlit felgunnar er 20mm frá felgumiðju.
Þetta gerir að verkum að þú getur ekki notað felgur undan þristum undir þinn. Þær myndu hverfa inn í hjólaskálarnar og vera mjög asnalegar.

Gatadeiling er bil á milli felgubolta. 5*120 er á flestum BMW bílum (ekki E30, E21 og 2002 þó).
Þetta þýðir að þú getur ekki notað felgurnar sem eru í linknum að ofan. Þær eru með Benz gatadeilingu og passa því ekki.

Staggered þýðir að felgurnar að aftan eru breiðari en þær að framan (venjulega 1" breiðari). Kemur mjög vel út á flestum afturhjóladrifnum bílum.

225/45/17 t.d. þýðir að dekkið er 225 mm á breidd. Prófíll (hæð frá felgu eins og þú segir). er 45% af 225. 17 stendur þá fyrir 17".


Þú getur bara notað felgur undan fimmum, sexum og sjöum undir þinn með góðu móti.
Sjöan notar lægstu offsetin svo þú mátt ekki hafa það of hátt. Þarf að vera í kring um 20. (Þristar nota offset um 40)
Ef þú kaupir E39 felgur þarftu litla plast hringi inn í felgurnar þar sem að miðjugatið er aðeins stærra á þeim.


Endilega spyrja aftur ef þetta var óljóst. Oft erfitt að koma þessu með offsetið í orð.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: PASSA ÞESSAR UNDIR 750i E38. Einhver til að hjálpa!!

Postby sissco » Sat 12. Jun 2010 23:10

Image
Image
Á þessari mynd.
B: Breidd felgu. (td. 7")
E: Offset (mælt frá miðri felgu)
F: Felgustærð (td. 17")
Sigurjón Sigurjónsson '77
Dodge Dakota Sport '97 5,2 Daily driver
Husqarna TE 450 '07 (Enduro og Supermoto)
Subaru Leggjasig Wagon. '97
Subaru Leggjasig Wagon. '90
User avatar
sissco
Kassabílstjóri
 
Posts: 100
Joined: Thu 09. Jul 2009 23:06
Location: Akureyri


Return to Felgur og dekk til sölu / óskast

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 16 guests