Smá update
Ég og eiddz tókum okkur til daginn áður en við lögðum ferð okkar til akureyrar að smíða angel eyes í bimman hjá mér.
Fórum á youtube og fundum tvenn DIY video og notuðum þau til að hjálpa okkur verkið.
Byrjuðum á því að leita að glærum plast stöngum, sem endaði með því að kaupa rimlagardínur í rúmfatalagernum bara til að fá glærar plaststangir.
Síðan skruppum við í Íhluti, keyptum 8 sterkar ljósdíóður og 4 viðnám, ásamt smá af 24 gauge vír.
Svo fórum við heim og skoðuðum hvað væri mikið vesen að taka ljósin í sundur, og kom það ánægjulega að óvart að þau eru bara smellt í sundur á e36
Byrjuðum á því að mæla hvað við þyrftum mikið í hvern hring og skárum síðan af glæru plaststöngunum. Síðan var ofninn hitaður uppí ca. 150 °C.

Svo var einni stöng í einu sett á bakka með álpappír og beðið í smá stund ca. 2-3 mín. komust að því að ef stöngin er höfð of lengi inní ofninum verður húnn öll útí loftbólum. þannig það vara farið og keypt ný.
Allar voru hitaðar og settar í hring inní CD-box lokinu sem á að vera sama stærð og glerið í ljósin.


Síðan var það mátað í ljósið.

Svo var skorið af stöngunum í endanlega stærð, og þær hitaðar aftur svo enginn bogi væri uppávið.

Það var látið kólna og síðan voru rispaðar rákur aftaná hringina.

Svo boruðum við með 5mm bor í endana á öllu stöngunum, settum glært naglalakk í til að fá meiri endurköstun frá perunum.
perurnar settar í.
álpappír við endann svo að ljósið fari ekki allt út bara í endanum.
Hitahosa utan um það.
álpappír bakvið allan hringinn.
Svo var að tengja þetta í, viðnám fór í plús á einni díóðu í mínus á hinni og svo snæurur úr hinum tvem endunum, sem voru tengdir í parkljósasnúrurnar.
Hringirnir límdir í ljósið.
Allt sett saman og ljósið skrúfað aftur á bílinn.
Svona var útkoman:


