Daginn
Ég er með bmw 525ix og er að reyna laga læsinguna í afturhurðinni. Ég er að reyna komast inní sjálfa hurðina og er búinn að losa mestmegnis af plötunni sem er innaná hurðinni, platan sem hurðaopnarinn er á og snúnings handfangið til að renna rúðunni upp og niður.
Það eru smellur á hliðinni sem var lítið mál að losa, bara togar í plötuna, en það virðist vera eitthvað í c.a. miðjunni á plötunni sem er ennþá fast við bílhurðina. Ég sé þó hvergi neinar skrúfur né neytt slíkt til að losa. Mér sýnist að þetta sé fast c.a á þeim stað þar sem handfangið innaná hurðinni er fest á plötuna, handfangið sem maður togar í þegar maður lokar hurðinni, en það hanfang virðist vera pikk fast.
Hefur einhver hugmynd um það hvernig ég myndi fara að því að losa þessa plötu?
kv
Frímann

