Ég var að skipta um OBC (18 takka, stóra tölvan) í E36 bílnum mínum og allt virkar fínt og flott nema hitastigið sem er kolvitlaust.
Gamla tölvan sýndi nokkuð rétt hitastig eða um +12°C í dag. Nýja tölvan sýnir hinsvegar -7°C sem klárlega kolvitlaust.
Trúi því ekki að neminn sé bilaður enda sýndi gamla tölvan rétt hitastig og það liðu aðeins örfáar mínútur milli OBC skipta.
Ég prófaði eitthvað gúggl en fann ekki mörg önnur svör önnur en að skipta um nema.
Tekur það tölvuna einhverja stund að jafna sig eða er einhver leið til að leiðrétta þetta í OBC-inu?
Lumar einhver á mögulegum lausnum?

