Vesen með E32 735i

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Vesen með E32 735i

Postby dabbinn » Mon 17. May 2010 13:14

Daginn

Er með einn gamlan E32 sem mig vantar smá hjálp með.

Málið er að þegar þegar maður svissar á bílinn þá fer þjófavörnin í gang og hættir ekki fyrr en maður aftengir rafgeyminn. (Bíllinn fer ekki í gang þó svo að geymirinn sé í góðu standi.)

Prufaði um daginn að starta honum með því að tengja pólana, sem fara á geyminn , beint í startkapla sem voru tengdir við annan bíl og þá fór hann léttilega í gang.

Síðan tengdi ég pólana aftur við geyminn og allt gekk fínt, þangað til ég opnaði einhverja hurð á bílnum, þá drap hann á sér og ekki séns að starta honum aftur nema með sömu aðferð.
Það er ekki mælt með að starta bílnum með þessari aðferð oft þar sem tölvan er ekki alveg að "fíla" það.

Þetta er ekki ósvipað dæmi og á þessu videoi en þarna er BMW 750.
http://www.youtube.com/watch?v=XcBdv9dUOe0
Eins og sést á commentunum með þessu videoi þá á að vera nóg að unplugga örygginum fyrir þjófavörnina en þau eru ekki staðsett á sama stað í þessum bílum, þe 735 og 750 og því veit ég ekki hvar það er.

Hefur einhver hugmynd um hvað hægt sé að gera, fyrir utan það að tengja hann við tölvu hjá IH/BogL með tilheyrandi okurkostnaði.





Kv.Dabbinn
dabbinn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 2
Joined: Mon 17. May 2010 12:54

Re: Vesen með E32 735i

Postby gstuning » Mon 17. May 2010 15:32

Þjófavörnin í bílnum er að stoppa þig.

Þannig að þig vantar að vita hvernig á að komast framhjá henni
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: Vesen með E32 735i

Postby Axel Jóhann » Mon 17. May 2010 23:52

Svo er náttúrulega alltaf kosturinn að fara með hann í Eðalbíla eða TB, þeir eru víst nokkuð sanngjarnir. :)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Vesen með E32 735i

Postby dabbinn » Tue 18. May 2010 11:18

Vitið þið hvar er hægt að nálgast upplýsingar um öll relay-in og og öryggin í bílnum (á netinu)?
dabbinn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 2
Joined: Mon 17. May 2010 12:54


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests