Ég er kominn hálfa leið með að strípa allt gólfið í E28 533ia hjá mér.
Mér finnst þetta bara skuggalega tímafrekt eitthvað.
Ég er aðallega að velta fyrir mér hvernig er best og fljótlegast að pússa niður í stálið, þeas eftir að tjörumottur hafa verið fjarlægðar.
Það sem ég hef verið að gera er að nota rafmagnsborvél með vírburstahjóli á til að pússa í burtu lakkið og þetta litla ryð sem er.
Það sem mig langar að vita er,,,,hvort það sé til fljótlegri leið en þetta?
Ég er búinn að eyða mörgum kvöldum í þetta og er rétt að verða hálfnaður með allt gólfið




