Drifskapt í E34

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Drifskapt í E34

Postby Vlad » Wed 05. May 2010 18:33

Jæja núna vantar mig smá aðstoð frá ykkur snillingunnum.

Þannig er mál með vexti að þegar ég set bílinn í R as in bakkgír þá kyppist hann stundum til. Þegar ég lét skipta um sjálfskiptiolíu á honum var mér bent á að þetta væri einhver "aftasti hjöruliður" á drifskaptinu sem væri slitin.

Svo spurningin mín er sú hvort að einhver hafi lent í þessu og gæti sagt mér nákvæmlega hvað sé að þar sem að þetta er orðið frekar leiðinlegt og það eina sem er að bílnum.

Og já bíllinn er sjálfskiptur.
Enginn bíll eins og er.
Vlad
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1318
Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Location: Selfoss

Re: Drifskapt í E34

Postby ValliB » Wed 05. May 2010 18:46

HemmiR lenti held ég í þessu á TMK-79

Djöfuls bank sem ágerðist og ágerðist. Þetta var orðið svakalegt undir það síðasta
bmw3
User avatar
ValliB
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1070
Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Location: Húsavík

Re: Drifskapt í E34

Postby Hannsi » Wed 05. May 2010 19:11

Best að skipta bara um aftast hlutan á þessu, redda sér notuðu.
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Re: Drifskapt í E34

Postby Lindemann » Wed 05. May 2010 20:02

eða skipta um hjöruliðinn.....ef hann fæst ekki stakur, þá geturu farið með skaptið í stál og stansa og þeir ættu að geta reddað hjörulið í þetta.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: Drifskapt í E34

Postby takecover » Wed 05. May 2010 22:46

ef þú getur notað skaft úr 520 91 model þá á ég skaft í lagi handa þér

legndinn er sú sama en er ekki viss með hvort flangsinn á drifunum sé sá sami
E34 520 m5025 vanos swappaður :D í notkunn
E34 520 m20 seldur
takecover
Kassabílstjóri
 
Posts: 190
Joined: Mon 15. Jun 2009 16:24

Re: Drifskapt í E34

Postby birkire » Thu 06. May 2010 02:48

eg a lika skaft handa ter ur alveg eins bil, fæst a godum pris
vti
birkire
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2518
Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Location: sniffa lím


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 24 guests