Sælir, ég er með smá spurningar um gorma.
Var að velta fyrir mér í fyrsta lagi hvar ég fæ þetta á þokkalegu verði? Persónulega finnst mér of mikið að borga 30-40.000 kall fyrir þetta en það er verðið sem ég fékk á sínum tíma hérna á Ísl. Eru einhverjar síður sem þið mælið með eða vitið um einhvern sem er að selja svona?
Annars var ég að spá hvort Það væri mikið mál að skella þessu undir?... og verða þetta að vera spes gormar í minn bíl eða er það sveigjanlegt? (er með E46). Svo var ég að hugsa um 60/40 lækkun, er það ekki bara solid?
Kveðja Maggi



