Vandamál með viftureim á Z3 1.9 M44 "komið í lag :D"

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Vandamál með viftureim á Z3 1.9 M44 "komið í lag :D"

Postby arnibj » Sun 25. Apr 2010 23:35

Sælir,
Málið er að ég skipti um viftureimina fyrir stuttu vegna þess að það var farið að væla í henni (þetta týpíska viftureima væl).
Eftir að ég skipti svo um reimina hélt áfram að koma óhljóð frá henni :aww: .
Þegar ég fór að skoða málið betur sá ég að viftureimin var ekki alveg rétt á strekkjarahjólinu, þ.e. gengur frammaf hjólinu í átt að vélinni c.a. 3-4mm.
Ég færði reimina á sinn stað það en tók eftir að um leið ég setti í gang gekk reimin aftur aðeins frammaf strekkjarahjólinu.
Þekkið þið svipað dæmi um svona mál?
Mér finnst strekkjarinn strekkja vel og heyri ekki óhljóð í legunum frá honum eða pulley hjólinu...
Spurning hvort ég þurfi nýjan strekkjara eða er kannski hægt að stilla þetta e-h til :?:
Hér er mynd sem ég fékk lánaða af veraldarvefnum af eins reim...
http://i44.photobucket.com/albums/f23/v ... sioner.jpg
Last edited by arnibj on Fri 07. May 2010 20:24, edited 1 time in total.
arnibj
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 16
Joined: Fri 08. May 2009 09:58

Re: Vandamál með viftureim á Z3 1.9 M44

Postby arnibj » Mon 26. Apr 2010 20:59

Sælir,
Smá uppfærsla á þessu...
Er nú búinn að skipta aftur um viftureimina þar sem hin fór strax :evil:
Einnig skipti ég nú um reimhjólið og hjólið á strekkjaranum s.s. bæði pulley hjólin.
EN ennþá færist reimin á strekkjaranum c.a. 3-4cm í átt að vélinni :bawl:
Sé ekkert að neinu og skil ekkert í þessu??
arnibj
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 16
Joined: Fri 08. May 2009 09:58

Re: Vandamál með viftureim á Z3 1.9 M44

Postby Zed III » Mon 26. Apr 2010 21:50

eitthvað af hljólunum hlýtur að vera skakkt eða laust, er það ekki ?

búinn að skoða afstöðuna með því að leggja eitthvað beint (lóðbretti eða eitthvað slíkt) utaná hjólin til að skoða þetta ?
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Vandamál með viftureim á Z3 1.9 M44

Postby Lindemann » Wed 28. Apr 2010 17:42

hoppar reimin bara til á strekkjarahjólinu en ekki á rillunum?

getur verið að það hafi átt að vera skinna undir strekkjaranum sem þú hefur gleymt?

eins er stundum einstefnukúpling á alternatorum, og ef hún festist þá getur það haft áhrif á reimina(samt ekki um leið og þú setur í gang)
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: Vandamál með viftureim á Z3 1.9 M44

Postby arnibj » Thu 29. Apr 2010 22:08

Sælir,
Já reimin flakkar ekki til á strekkjarahjólinu heldur gengur aðeins inn og rúllar þar eðilega. Eins eru öll önnur hjól í lagi.
Ég fékk second opinion frá tækniþjónustunni (sýndi þeim þetta) og hann sagði að þetta skrik væri svo lítið að ég þurfi ekki að pæla í þessu.
Var sáttur með það þangað til að byrjaði að ískra aftur frá reiminni... skil ekki alveg kannski strekkjarinn þó mér finnist hann ríghalda.
Einnig flaug reimin af hjá mér þegar ég tók smá drift á honum. (fór örugglega hátt í 6þ RPM)
Reimin heldur alveg ef ég keyri bílinn létt en óhljóðin byrja eftir c.a. 5mín keyrslu.
Spurning um að athuga þetta með alternatorinn?
arnibj
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 16
Joined: Fri 08. May 2009 09:58

Re: Vandamál með viftureim á Z3 1.9 M44 "komið í lag :D"

Postby arnibj » Fri 07. May 2010 20:31

Já, loksins loksins fann ég út úr þessu.
Eftir að hafa tekið allt í sundur... yfirfarið... séð ekkert að neinu... rak ég augun í að það lak einn dropi frá vatnslásnum og beint niður á reimina!
Málið er að ég skipti um vatnslásinn fyrir ekki allt of löngu síðan og hafði ekki hert nógu vel á hosuklemmunum á slöngunum :lol:
Enda vatnslásinn úr plasti og ekki vill maður brjóta hann...
Allavegana eru óhljóðin hætt og kagginn að verða reddí fyrir sumarið 8)
arnibj
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 16
Joined: Fri 08. May 2009 09:58


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 36 guests