Sæll, tekið af
www.bikr.isÞriðja og síðasta umferð Bikarmótaraðar BÍKR fer fram þann 1. maí n.k. Ekin verður sérstaklega útbúin sérleið í Sundahöfn, nánar tiltekið gömlu bílavöllum Samskipa, neðan við Klepp. Leiðin verður um 2 km, svokallað "super special stage" og verða tveir bílar ræstir inn samtímis. Eknar verða nokkrar umferðir en fjöldi þeirra verður ákvarðaður eftir fjölda þátttakenda.
Skráning er hafin og lýkur henni fimmtudaginn 22 apríl. og munu þá og munu þá gefnar út frekari upplýsingar um keppnisskoðun ofl.
Tilkynning um skráningu skal send á
bikrsport@gmail.com og skal hún innihalda upplýsingar um Nafn keppanda, akstursíþróttaklúbb, bíltegund og flokk.
Keppnisgjald er kr. 10.000- og skal leggja það inn á reikning BÍKR 130-26-796 kt. 571177-0569 Þeir sem að ekki hafa greitt félagsgjald í BÍKR geta lagt það inn á sama reikning en árgjaldið er kr. 5.000-
Keppnisstjóri er Jón Þór Jónsson í síma 824 0670
Fjöldi sýningarviðburða verða settir upp í tengslum við keppnina og mikið um dýrðir, torfærubílar, motorcross, fjórhjól, spyrnur ofl. ofl. Þeim sem að hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni er bent á að hafa samband við keppnisstjóra.
Keppnisstjórn hefur til umráða 1600m2 húsnæði á kepnissvæðinu og stendur það keppendum til boða til þess að þjónusta bíla ofl.
Verðlaunaafhending fer fram á Burnout sýningu Kvartmíluklúbbsins sem að fer fram þessa sömu helgi en ríkt samstarf er milli klúbbanna tveggja í tengslum við þessa viðburði.