X5 E53 diesel auka olíubrennari

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

X5 E53 diesel auka olíubrennari

Postby Garðar Rafns » Fri 16. Apr 2010 21:27

Er með X5 E53 diesel og það er bara boðið uppá "Aux ventilation" á tölvuskjánum, það er ekki boðið uppá "Aux heating"
veit eitthver hvað á að gera til að fá "Webasto" miðstöðina til að virka?
það er búið að prófa að setja "remot control T 70" frá Webasto sem passar í statífið í skottinu og allir tenglar passa í, en allt kemur fyrir ekki.
'i vetur fór fíringin ekki í gang sama hvað var kalt úti það hitnaði ekki pústið frá henni, allaveganna bráðnaði ekki klakinn af pústinu.
Veit eitthver hvað skal gera næst?
Með fyrirfram þökk
Garðar Rafns
Garðar Rafns
Kassabílstjóri
 
Posts: 144
Joined: Thu 14. Aug 2008 16:55

Re: X5 E53 diesel auka olíubrennari

Postby IngóJP » Sat 17. Apr 2010 03:19

Mótorinn fyrir olíumiðstöðina er eflaust fastur. Það gleymist alltaf að láta þetta ganga yfir sumartímann og alla aðra daga sem engin þörf er fyrir þetta og þá festist mótorinn. Hef lennt í þessu nokkrum sinnum :lol: sem betur fer alltaf í ábyrgð. En er með svona í MB sem ég á þar er sama keisið í gangi þarf að rífa úr og spaða í sundur og losa þetta drasl
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Re: X5 E53 diesel auka olíubrennari

Postby Lindemann » Mon 19. Apr 2010 22:21

láttu lesa af honum, það getur verið bilaður hitaskynjari, flame sensor, glóðarkerti, mótor eða heilinn.........jafnvel vatnsdælan.
það er í raun ekkert hægt að segja til um það nema tölvulesa. það þarf ekkert að vera stórmál að laga þetta samt.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 13 guests