Útvarpsvandræði í E39 2003

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Útvarpsvandræði í E39 2003

Postby bfs » Sat 10. Apr 2010 09:38

Útvarpið virðist vera ótengt "svissinum", þegar maður startar bílnum þá kveikir útvarpið ekki á sér. Ég get kveikt á því handvirkt en það slekkur á sér eftir 20 mín. Eins ef kveikt er á útvarpinu þegar ég drep á bílnum þá þarf ég að slökkva á útvarpinu handvirkt.

Miðað við upplýsingarnar sem ég hef fundið hingað til þá er þetta tengt fídus í þessum bílum sem gerir manni kleift að kveikja á útvarpinu þegar svissað er af bílnum en þá slekkur það einmitt á sér sjálfkrafa eftir 20 mín, útvarpið hjá mér virðist bara ekki fatta að búið sé að svissa á/af bílnum. Ég hef fundið þræði á netinu þar sem fólk er að lenda í því sama en hvergi fundið lausnina.

Einhverjar hugmyndir um hvernig mögulegt sé að laga þetta vel þegnar :D

kv,
Bragi
bfs
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 39
Joined: Tue 16. Mar 2010 14:02

Re: Útvarpsvandræði í E39 2003

Postby bfs » Sun 02. May 2010 11:02

Langaði bara að pósta lausninni ef einhver annar lendir í svipuðu vandamáli og grefur upp þennann póst.

Ég fór með bílinn í BogL og þeir tóku eftir því að ekkert öryggi var í gati númer 58 í skottinu, þeir færðu eitt öryggið í það gat, líklega úr gati 56? Einhver hefur verið að fara yfir öryggin einhverntímann, tekið þetta úr og skilað því síðan á rangan stað.

Útvarpið virkar allavega fínt núna :thup:

Öryggin:
Image
bfs
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 39
Joined: Tue 16. Mar 2010 14:02


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 16 guests