Söluþræðir á kraftinum, bull í gangi og ósætti

Hér skal spjalla um BMW.

Söluþræðir á kraftinum, bull í gangi og ósætti

Poll ended at Sat 10. Apr 2010 00:06

Aðferð A, læsa söluþráðum og einungis höfundur og stjórnendur geta breytt/sett inn innlegg.
10
7%
Aðferð B, leyfa áfram öll innlegg en taka harðar á bulli og óæskilegum athugasemdum.
125
93%
 
Total votes : 135

Re: Söluþræðir á kraftinum, bull í gangi og ósætti

Postby saemi » Tue 06. Apr 2010 10:52

Beemer wrote:Það er bara verið að mála skrattann á vegginn út af tveimur söluþráðum. Ég hef fylgst með þessu spjalli í góðann tíma og í 99% tilvika er ekkert vesen.


Ég myndi nú ekki segja að aðrið þræðir séu alveg lausir við þetta vesen. En það er rétt hjá þér að það eru 2 þræðir hér sérlega slæmir.

Það þarf að hafa þetta í fastara formi að mati stjórnenda.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Söluþræðir á kraftinum, bull í gangi og ósætti

Postby Einarsss » Tue 06. Apr 2010 11:00

Þessi þráður er sorglega leiðinlegur .. ætti ekki að þurfa koma til þess að stofna svona drama þræði ef menn kynnu sér hófs. Geta menn virkilega ekki sleppt því að pósta ef þeir hafa ekkert gott að segja?

Ég er fylgjandi að tjóna ogverðlöggurnar fylgist með þráðunum svo það sé ekki verið að scam-a óreynda aðila. Vildi að ég hefði haft einhvern til að leiðbeina mér á bílasölu þegar ég keypti bíl með ónýtri heddpakkningu og var logið að mér að þetta væri þekkt vandamál að einhver pakkdós væri farin( ég vissi btw ekki á þeim tíma hvað pakkdós er ) Það hefði sparað mér 100k




:thdown: :thdown: :thdown: :thdown: :thdown:
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Söluþræðir á kraftinum, bull í gangi og ósætti

Postby Hannsi » Tue 06. Apr 2010 11:11

Einarsss wrote:Þessi þráður er sorglega leiðinlegur .. ætti ekki að þurfa koma til þess að stofna svona drama þræði ef menn kynnu sér hófs. Geta menn virkilega ekki sleppt því að pósta ef þeir hafa ekkert gott að segja?

Ég er fylgjandi að tjóna ogverðlöggurnar fylgist með þráðunum svo það sé ekki verið að scam-a óreynda aðila. Vildi að ég hefði haft einhvern til að leiðbeina mér á bílasölu þegar ég keypti bíl með ónýtri heddpakkningu og var logið að mér að þetta væri þekkt vandamál að einhver pakkdós væri farin( ég vissi btw ekki á þeim tíma hvað pakkdós er ) Það hefði sparað mér 100k




:thdown: :thdown: :thdown: :thdown: :thdown:

Þetta er einmitt það sem ég hef verið að spá í. Hvað eru menn að pósta inná söluþræði þegar þeir hafa einu sinni ekki áhuga eða þurfa að kaupa sér bíl?

Vill meina að þetta sé laumupósthór.
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Re: Söluþræðir á kraftinum, bull í gangi og ósætti

Postby Aron Fridrik » Tue 06. Apr 2010 11:16

það er bara 2 reglur sem ég vill sjá um auglýsingarnar..

nota forritið hans Steina og bannað að sleppa ásettu verði
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Re: Söluþræðir á kraftinum, bull í gangi og ósætti

Postby Benz » Tue 06. Apr 2010 12:12

Mín skoðun hefur legið ljós á því spjallsvæði sem ég hef sem skipt mér að (http://www.stjarna.is/spjall) - en n.b. les þetta skemmtilega spjallsvæði líka reglulega enda með dálæti á þýskum eðalbílum 8)

Valdi kost B þó svo að það komi jafnvel einhverjum sem til mín þekkja á óvart.
Er sjálfur búinn að fá upp í kok af "off topic" og bulli í söluþráðum :evil: en ef spjallumsjón er vel sinnt þá sé ég ekkert af því að hafa þetta áfram opið svo fremi sem um innlegg gildi almennar skynsemisreglur.

Ef settar eru skilmerkilegar reglur um innlegg og að ef menn fara ekki eftir þeim þá er einfalt að láta umsjónarmenn spjallsins sjá um að eyða út færslum (sé þess þörf) og senda viðkomandi aðila ábendingu um að ekki hafi verði farið að reglum spjallsins.
Með því að nota áminningarkerfið sem er innbyggt í spjallkerfinu þá er hægt að fylgjast vel með því hvaða einstaklingar fá flestar áminningar. Ef aðili fer yfir ákveðinn fjölda áminninga þá er hægt að loka á hann tímabundið eða að gera aðrar ráðstafanir sem stjórnendur spjallsins vilja gera.
Þá geta líka þeir sem lesa þræðina sent ábendingu vegna innleggs á umsjónarmenn spjallsins ef þeim finnst eitthvað í innleggjum stangast á við reglurnar.
Hins vegar, m.v. fjölda innleggja á þetta mjög svo virka spjallsvæði, myndi það líklega kalla á fleiri umsjónarmenn því að jú ekki nennir maður alltaf að vera að lesa öll innlegg í öllum þráðum :lol:

Þetta er auðvitað bara mín skoðun og veit ég vel að ansi margir eru mér ósammála :wink:, og þeim fækkar sjálfsagt ekki með þessu innleggi :mrgreen:

Hér er ágætt dæmi um reglur sem að mínu mati hafa bara virkað alveg ágætlega:
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=5393
Ath. það skal þó tekið fram að Mercedes-Benz klúbbur Íslands (MBKÍ), sem á stjarna.is/spjall, er hluti af Mercedes-Benz Clubs International (MBCI) og því er ekki óeðlilegt að á spjallþræði klúbbsins gildi strangari reglur en almennt gerist enda þarf klúbburinn að gangast undir regluverk MBCI til þess að vera samþykktur sem hluti af MBCI.
Þetta hefur þó e.t.v. gert það að verkum að sumum finnst það spjallþráður MBKÍ ekki eins skemmtilegur fyrir sína parta og er ekkert við því að gera :roll: .
Benedikt Hans Rúnarsson
User avatar
Benz
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 270
Joined: Mon 29. Dec 2008 10:17
Location: Garðabær

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests