bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 08. Jun 2025 21:50

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 35 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next

Söluþræðir á kraftinum, bull í gangi og ósætti
Poll ended at Sat 10. Apr 2010 00:06
Aðferð A, læsa söluþráðum og einungis höfundur og stjórnendur geta breytt/sett inn innlegg. 7%  7%  [ 10 ]
Aðferð B, leyfa áfram öll innlegg en taka harðar á bulli og óæskilegum athugasemdum. 93%  93%  [ 125 ]
Total votes : 135
Author Message
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 20:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Dóri- wrote:
ég styð A hiklaust
Ég þoli ekki þessi skítacomment sem koma stundum, stundum eru auglýstir bílar sem hafa verið auglýstir nýlega, það er búið að handa nokkrum hundruðþúsundköllum í hann og svo kemur þetta komment "Bíddu var þessi ekki auglýstur á xxx verði um daginn"

þúst hvað kemur það fólki við hvað er sett á bíl ef að það sé of hátt bara ýta á back og halda kjafti.

Róa sig á skítköstunum.


Mér finnst ekkert að því að spyrja, en það þarf ekki að haga sér asnalega þegar spurt er. :?

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 20:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
mér finnst ekkert að því að spurja, í PM

Ég hef selt alveg fullt af bílum í gegnum þessa síðu hérna, en uppá síðkastið þá hefur maður bara verið að nota aðra miðla.
Nenni ekki að þurfa að vakta auglýsinguna mína uppá hvort það sé eitthvað skítacomment á henni.

Einsog með þessa auglýsingu sem málið snýst um þá vorkenni ég stráknum mjög mikið fyrir að vera með þetta lán á bakinu og það hjálpar ekkert að hrauna yfir hann. Fólk er að fremja sjálfsvíg útaf skuldum, það er bara bláköld staðreynd.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 20:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Posts: 1834
Location: Rkv
saemi wrote:
BirkirB wrote:

Þá er hægt að koma því inn í dæmið að stjórnendur skammi viðkomandi leiðindakommentara...það þarf að "aga" fólk hérna þannig að svona komment eigi sér ekki stað...það hefur bara ekki verið gert og þessvegna eru leiðindakomment í söluþráðum...

Mér finnst sniðugt að koma reputation fítus á þetta spjall ...notendur gefa hvor öðrum jákvæða eða neikvæða rep-points fyrir ráð og slíkt. Þá færi fólk að haga sér betur því hver vill vera með slæmt rep sem allir sjá?

Þetta er gott spjall imo, það vantar bara aðeins meiri aga og stjórn á það því það hefur stækkað og þá hefur ekki verið hugsað nóg um að breyta og viðhalda reglum í samræmi við það.


Það er alveg rétt, að spjallið hefur stækkað mikið og það þarf að taka betur og fyrr á málum hér.

Ég er ekki viss um að það þýði að vera að "aga" fólk, skammi osfrvs. Þetta er flest fullorðið fólk hér inni (þó svo allir hagi sér ekki þannig) og ég er nokkuð viss um slíkir aðilar myndu taka það óstinnt upp ef maður færi að reyna að ala þá upp. En það má einfaldlega stroka út eða eyða kommentum (eða hluta úr þeim) sem ekki eiga heima hér á spjallinu. Ég held að það sé besta leiðin. Að fólk lendi bara í því að innleggum þeirra sé einfaldlega breytt eða eytt á þann hátt að þau séu ekki að skemma fyrir á spjallinu.

Reputation dæmið er hið besta mál held ég. Fyrsta skrefið hefur verið stigið með að setja feedback á þá sem eru að selja hluti. Þetta væri fín viðbót við það.


Meinti þetta kannski ekki alveg svona bókstaflega og notaði ekki réttu orðin. En menn átta sig á því hvað má og hvað má ekki með tímanum. Það er hægt að byggja þetta spjall upp þannig með stífari reglum? Kannski græja viðvörunarkerfi...T.d. mátt fá max 5 warnings á x tíma og ef þú ferð yfir þær þá ertu bannaður í einhvern tíma...Það er agi eða virk skilyrðing, séð frá ákveðnu sjónarhorni.
Það er bara erfitt að koma sumu til skila á internetinu :mrgreen:
Allavega er þörf umræða komin í gang :thup:

_________________
E39M5
A35AMG


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 21:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Dóri- wrote:
mér finnst ekkert að því að spurja, í PM

Ég hef selt alveg fullt af bílum í gegnum þessa síðu hérna, en uppá síðkastið þá hefur maður bara verið að nota aðra miðla.
Nenni ekki að þurfa að vakta auglýsinguna mína uppá hvort það sé eitthvað skítacomment á henni.

Einsog með þessa auglýsingu sem málið snýst um þá vorkenni ég stráknum mjög mikið fyrir að vera með þetta lán á bakinu og það hjálpar ekkert að hrauna yfir hann. Fólk er að fremja sjálfsvíg útaf skuldum, það er bara bláköld staðreynd.


Ef hann getur svarað því í PM, afhverju getur hann ekki svarað því í þræðinum? Ég er ekki gera lítið úr mönnum, það telst ekki óeðlilegt að bílar eru að springa úr lánum í dag. Það sem ég vil segja að það er óþarfi að fela umræðuna svona rosalega með því að loka algjörlega á hana, menn ættu bara að koma fram eins og menn. Bæði seljandi og hugsanlegur kaupandi.

Annars fremur fólk sjálfsvíg útaf mörgum ástæðum og ef fólk dettur út í það stundarbrjálæði þá held ég að spurningar um verð ýti því yfir strikið. :? Halda þessu á civil nótum.

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 04. Apr 2010 01:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Ef að menn nenna ekki að vakta þræðina og svara í þeim þá segi ég bara TS þetta er ókeypis og maður einmit treystir frekar auglýsingum hér því saga bílana og ástand er oft þekkt af meðlimum þannig að ef einhver reynir að svindla þá kemst upp um hann.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 04. Apr 2010 18:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
þessi lenska manna til að spurja hvort bíllinn hafi ekki fengist ódýrari einhverntíman áður er óþolandi, það kemur málinu bara ekkert við,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 04. Apr 2010 20:55 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Ég minni á upphaflegt innlegg í þessum þræði, On-Topic með þetta :)

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 05. Apr 2010 09:11 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Fri 19. Jan 2007 14:09
Posts: 113
Það vantaði reyndar þann valmöguleika að halda þessu óbreyttu. En af þessum tveimur valmöguleikum þá myndi ég frekar vilja sjá B. En persónulega finnst mér þetta hafa virkað fínt hingað til og sé ekki ástæðu til þess að breyta einu eða neinu bara út af því að það leynist einn eða tveir svartir óþroskaðir sauðir inn á milli fjöldans.

Ef fólk fær að tjá sig eins og það vill á söluþráðum þó svo að það fari stundum fyrir brjóstið á seljandanum þá hjálpar það yfirleitt við að gefa heiðarlega mynd af bílnum sem er verið að selja.

Til dæmis þegar einhver deilir þeirri vitneskju að bíll hafi verið seldur ódýrari áður, þá finnst mér ekkert að því að minnast á það og spyrja af hverju. Það er oftast ástæða fyrir því að verð á bíl breytist og þá er bara spurning um að taka fram af hverju hann var ódýrari/dýrari. Ef bíll er seldur ódýrari en áður þá er enginn að spá í því þar sem það útskýrir sig sjálft, en ef þessu er öfugt snúið þá er yfirleitt einhver ástæða og ef menn hafa ekkert að fela þá er varla mikið mál að útlista þær viðgerðir/breytingar sem útskýra það. Maður hefði haldið að það myndi bara hjálpa við sölu.

Ég held að með því að breyta þessu spjallborði og herða reglurnar þá sé bara verið að hjálpa þeim sem vilja einhverra hluta vegna ekki hafa allt upp á yfirborðinu og eru þ.a.l leiðandi að fela eitthvað.

Niðurstaða: Halda þessu óbreyttu!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 05. Apr 2010 15:16 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
tinni77 wrote:
Ég styð B hiklaust.


Hvað finnst þér að ætti að gera við nýlegt innlegg í einn söluþráðinn þar sem er verið að spyrja hvar SvenniPez sé ? ;-)

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 05. Apr 2010 16:06 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 02. Mar 2010 00:18
Posts: 42
Alpina wrote:
MR.BOOM wrote:
Ég vil sjá val........seljandi ræður hvort auglýsingin sé opinn eða læst.....

Mér finnst vanta meira eftirlit með þráðum og menn fái áminningar fyrir endalaust pósthór og tuð.....

Eins og staðan er í dag þá leyfast hótanir um líkamsmeiðingar og einelti en ekki of hátt verð á BMW og lélegar auglýsingar.....

Bæði stjórnendur og spjallverjar þurfa á góðri naflaskoðun að halda svo kraftur rati á rétta braut aftur....


Þetta er óvitlaus tilgáta :thup:

stið þetta

_________________
E34 525

E34 520 Partaður
civic seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 05. Apr 2010 17:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
iar wrote:
tinni77 wrote:
Ég styð B hiklaust.


Hvað finnst þér að ætti að gera við nýlegt innlegg í einn söluþráðinn þar sem er verið að spyrja hvar SvenniPez sé ? ;-)


Áts :lol:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 05. Apr 2010 17:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Ef menn fara að hrúga upp endalausum reglum þá er verið að minka þá ábyrgð sem menn bera á skrifum sínum. Eftir því sem reglurnar eru strangari og ítarlegri þá leyfa menn sér kannski meira, af því að reglurnar banna það ekki. Sem leiðir til þess að það þarf að fara að semja reglur um allan andskotan, svona USA style. Kannski svolítið langsótt hjá mér en þetta er aðferð sem menn hafa notað (ekki hér) til að koma sér undan ábyrgð, þeir segja bara að þetta hafi ekki verið bannað/ólöglegt.

Ef menn drulla á sig í söluþræði þá eru þeir búnir að afhjúpa sig og ég persónulega sé ekkert að því. Og ef menn eru með einhver leiðindi og leggja ekkert gott til hérna þá geta þeir bara verið úti.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 06. Apr 2010 07:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
Bjarkih wrote:
Ef menn fara að hrúga upp endalausum reglum þá er verið að minka þá ábyrgð sem menn bera á skrifum sínum. Eftir því sem reglurnar eru strangari og ítarlegri þá leyfa menn sér kannski meira, af því að reglurnar banna það ekki. Sem leiðir til þess að það þarf að fara að semja reglur um allan andskotan, svona USA style. Kannski svolítið langsótt hjá mér en þetta er aðferð sem menn hafa notað (ekki hér) til að koma sér undan ábyrgð, þeir segja bara að þetta hafi ekki verið bannað/ólöglegt.

Ef menn drulla á sig í söluþræði þá eru þeir búnir að afhjúpa sig og ég persónulega sé ekkert að því. Og ef menn eru með einhver leiðindi og leggja ekkert gott til hérna þá geta þeir bara verið úti.


Og helduru vikilega að þeir menn sem eru þannig verða úti?

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 06. Apr 2010 08:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
hvernig er þetta, eru þetta meðlimir eða non-meðlimir sem eru að valda mestu vandræðunum í söluþráðum ?

Ef það eru non-meðlimir er þá ekki bara málið að eingöngu meðlimir sem mega pósta í söluþræðina ?

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 06. Apr 2010 10:33 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Fri 19. Jan 2007 14:09
Posts: 113
Það er bara verið að mála skrattann á vegginn út af tveimur söluþráðum. Ég hef fylgst með þessu spjalli í góðann tíma og í 99% tilvika er ekkert vesen.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 35 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 17 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group