Clipsinn wrote:
mig langar að koma nokkrum orðum hér að sem eigandi bíllsins.
bíllinn sem er m5 og lenti í tjóni 2oo7 og er jú víst umboðsbíll ásamt bílnum hjá ONNO hér á spjallinu og eru þeir einu tvei á landinu. ég kaupi svo bílinn 6 janúar 2008 skemmdan. tjónið var það mikið að ég taldi betra að setja nýjan varahlut en að gera við þann gamla. skráningin er rétt og allt löglegt þarna á ferð, og ekkert óheiðalegt. eins og einhver þarna var að taka fram.
(í stuttu máli ef ég myndi skemma orginal brettið á 1300 yarisnum mínum og setja svo 1000 btettið á hann að er hann þá bara orðinn 1000 yaris með 1300 vél?) látiði ekki eins og hálvitar.
bíllinn kom seint á götuna og það útskýrir aksturinn á bílnum.
og Þórður... halltu þínum commentum bara fyrir þig. því helmingurinn af því sem kemur útúr þér er eintómt bull!
og ef tilvonandi kaupandi vill vita eitthvað um bílinn að þá get ég svarað öllum spurningum um bílinn en hann þarf ekki að lesa það sem kraftsmeðlimir ÞYKJAST vita!
þeir sem hafa einhverjjar spurningar um bílinn að þá ger ég svarað þeim í síma 8233464 Kv: Sævar Þrastar.
og loka svo þessum þræði takk!
Í fyrsta lagi, þá er þráðum hér á kraftinum ekki lokað bara vegna þess að fólk óski eftir slíku. Ástæða þarf að vera fyrir slíku, eins og t.d., tvær söluauglýsingar um sama bílinn á sama tíma.
Í öðru lagi, þá er langt innan við helmingur þess sem Hann Þórður lætur út úr sér bull. Ég hef ekki tekið saman hvar sú prósentutala liggur en hún er fjarri lagi frá því að vera 50%.
Í þriðja lagi, þá máttu gjarnan útskýra betur hvað þú ert að segja því ég skil ekki (býst við að svipað sé með aðra sem lesa þetta) hvað felst í þessum orðum þínum:
"tjónið var það mikið að ég taldi betra að setja nýjan varahlut en að gera við þann gamla. skráningin er rétt og allt löglegt þarna á ferð, og ekkert óheiðalegt. eins og einhver þarna var að taka fram."Ég skil ekki þetta með að þú hafir talið betra að setja nýjan varahlut en að gera við þann gamla. Orðalagið er eitthvað skrítið þarna.
Skel af bíl er ekki varahlutur, heldur er það sem er raðað á skelina varahlutur í mínum huga. Ég veit ekki betur en að skráning fylgi skel, þannig að segja það að þetta sé RU- sálugi viðgerður með varahlutum er skrítin lógíg í mínum eyrum.

Þessi mynd ætti að gefa nokkuð skýra mynd af því hvað varð um blessaða RU- skelina. Getur þú útskýrt fyrir okkur hvernig þú gast fengið það löglega í gegn að fá að nota RU-skráninguna áfram á skel af öðrum bíl? Það má vel vera að það sé hægt, ég bara veit ekki til þess að það hafi verið gert. Fínt að fá upplýsingar um það ef það er hægt að gera svoleiðis.
Ég er svo 100% sammála Loga með það að ef ég myndi kaupa þennan bíl sem umboðsbíl með skráningarnúmerinu RU-, þá væri ég ansi óhress með að komast að þessum sannleika. Tel líklegt að lögsókn væri auðsótt mál nema að þetta hafi verið gert allt löglega (sem vel má vera að gert hafi verið).
Gleðilega páska!